Viljum gleðjast þótt tímar séu erfiðir 25. nóvember 2009 06:00 jólahlaðborð Það getur verið gott að gleðja starfsmenn sína með jólahlaðborði. Myndin er tekin á Hótel Örk. „
Einmitt í svona árferði er ákveðið sjónarmið að horfa fram á veginn og láta skína í að það séu bjartari tímar fram undan," segir Þórður Snorri Óskarsson, aðjúnkt í vinnusálfræði við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, spurður hvort fyrirtæki eigi að halda jólahlaðborð í kreppunni eða borga starfsmönnum frekar andvirði þess. Eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær vill starfsmaður hjá Orkuveitu Reykjavíkur frekar peningagreiðslu en að fyrirtækið bjóði honum í jólahlaðborð. Þórður segir að út frá vinnusálfræði geti bæði sjónarmið verið gild. Jólahlaðborð geti verið þáttur í að þjappa starfsfólki saman. „Það má líta á það sem ákveðna hvatningu og umbun. En svo má auðvitað líka líta á það að sumir vilja heldur fá þetta í launaumslaginu. Ég held að hver og einn stjórnandi verði að meta hvernig staðan er á hverjum stað og hvað fellur best að þeim viðhorfum sem eru ríkjandi. Það er ekkert sem segir að annað sé betra en hitt," segir Þórður. Sjálfur hallast Þórður fremur að því að halda beri jólahlaðborð. Í kreppunni sé það betra en að einblína á að menn komist aldrei út úr erfiðleikunum. „Það má segja að þetta sýni ákveðið þakklæti og fólk vill líka gleðjast þótt það séu erfiðir tímar. Eins eru þetta kannski ekki heldur svo miklir peningar hjá stóru fyrirtæki."- gar
Mest lesið Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Innlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Innlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Fleiri fréttir Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Guðrún vinsælli en Agnes og traust til kirkjunnar á uppleið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Björg býður ungliðum til fundar Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Sjá meira