Hönnuðir láta gott af sér leiða 25. nóvember 2009 06:00 Lætur gott af sér leiða Þorbjörg sameinar ástríðu sína fyrir góðgerðarmálum og íslenskri hönnun með hönnunarpartíi á b5 3. desember.Fréttablaðið/Stefán „
Hugmyndin er að koma íslenskum kvenkynshönnuðum á framfæri og láta gott af okkur leiða um leið," segir Þorbjörg Marinósdóttir blaðamaður, en hún stendur fyrir hönnunarpartíi á b5 fimmtudaginn 3. desember. Þar munu íslenskir kvenkynshönnuðir kynna og selja vörur sínar og hver hönnuður mun gefa eina vöru til góðgerðarmála. Þá er fólk hvatt til að mæta með lítinn jólapakka merktan aldri og kyni sem mun fara til þeirra sem minna mega sín. „Ég hef á hverju ári sett gjafir undir tréð í Smáralind fyrir börn og unglinga sem fá annars fáar eða engar gjafir. Það er nokkuð ljóst að þörfin hefur aldrei verið eins mikil og í ár og því ákvað ég að sameina ástríðu mína fyrir góðgerðarmálum og íslenskri hönnun," segir Þorbjörg. „Þetta er í fyrsta sinn sem Designer Desember er haldið. Það hefur verið gífurlega vel tekið í þetta bæði af hönnuðum og gestum og því aldrei að vita nema þetta verði árlegt. Ég þurfti því miður að vísa ansi mörgum hönnuðum frá vegna plássleysis og er alveg miður mín yfir því að geta aðeins boðið broti af þeim sem vildu vera með að taka þátt. Ég er því að skoða möguleikann á því að hafa þetta tvö skipti í desember," útskýrir hún. Alls verða fimmtán hönnuðir með að þessu sinni og þar á meðal eru E-label, Gyðja, Emami, Nakti apinn og Volcano design. „Það er frítt inn og verður stelpulegur jólakokkteill í boði Smirnoff. Eldhúsið verður opið lengi fyrir svanga viðskiptavini og klukkan 22 tekur sjarmörinn Sjonni Brink við með ljúfum tónum fram eftir kvöldi," segir Þorbjörg og vonast til að sjá sem flesta á b5 milli klukkan 18 og 21, 3. desember.-ag
Mest lesið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Emma Roberts gengin í það heilaga Lífið Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Lífið Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Lífið samstarf Fleiri fréttir Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Sjá meira