Óstarfhæf bæjarstjórn í Grindavík Valur Grettisson skrifar 11. júní 2009 14:54 Deilt var um hús bæjarstjóra Grindavíkur síðasta sumar. Þá sprakk bæjarstjórnin.
Meirihlutinn í bæjarstjórn Grindavíkur er orðinn að minnihlutastjórn eftir að Samfylkingarmaðurinn Garðar Páll Vignisson sagði sig úr Samfylkingunni og gekk yfir í Vinstri græna. Fresta þurfti bæjarstjórnarfundi vegna þessa og því er bæjarstjórnin óstarfhæf. Þá sagði Björn Haraldsson sig úr Frjálslyndaflokknum og gekk einnig í Vinstri græna. VG átti engan mann í síðustu kosningum. Þá er kominn upp sú sérkennilega staða að meirihluti bæjarstjórnar Grindavíkur, sem eitt sinn samanstóð af Samfylkingu og Framsókn, er nú minnihlutastjórn studd af vinstri grænum. Þá er bæjarstjóri Grindavíkur, Samfylkingarkonan Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, búinn að segja af sér sem bæjarfulltrúi. Það gerði hún á síðasta fundi bæjarstjórnar. Hún situr engu að síður áfram sem bæjarstjóri. Fresta þurfti síðasta bæjarstjórnarfundi þegar kjósa átti í bæjarráð og má túlka það sem að stjórni standi vægast sagt höllum fæti, hugsanlega er hún fallin, í það minnsta óstarfhæf. Ástæðan fyrir því að Jóna Kristín á að hafa sagt af sér sem bæjarfulltrúi var til þess að fá varamann inn. Það gerði hún til þess að sækja sér liðstyrk samkvæmt heimildum Vísis. Margt hefur gengið á í bæjarstjórn Grindavíkur. Síðast var það um páskana þegar næstum slitnaði upp úr samstarfinu þegar Samfylkingin reyndi að ráða Garðar Pál sem skólastjóra grunnskóla þar í bæ. Frá því var horfið og samstarfið gat haldið áfram. Þar áður slitnaði upp úr samstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar þegar í ljós kom að gerður var umdeildur ráðningasamningur við þáverandi bæjarstjóra. Hann fékk greitt laun út kjörtímabilið og svo var húsið keypt af honum. Sá bæjarstjóri var ráðinn og því ópólitískur. Þannig hafði það verið í fjölda ára þangað til Jóna Kristín tók við.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fleiri fréttir Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Sjá meira