Bensínafgreiðslumaður ærðist 3. september 2009 04:15 Maðurinn fær ekki vinnu aftur á Olís eftir berserksganginn. Myndin er úr safni.Fréttablaðið / daníel
Lögreglumál „Hann var alveg viti sínu fjær,“ segir yfirmaður bensínafgreiðslumanns Olís í Norðlingaholti sem ærðist við störf í gær. Hann veittist að viðskiptavinum bensínstöðvarinnar og samstarfsmönnum sínum og var að lokum færður burt í járnum. Ekki liggur fyrir hvað kom yfir manninn, sem er á þrítugsaldri og af erlendum uppruna. Að sögn sjónarvotts virðist sem kveikjan hafi verið þegar starfsmaðurinn sakaði hjón sem biðu eftir afgreiðslu um að ætla að stela bensíni. Átök brutust út í kjölfarið. Aðrir viðskiptavinir og samstarfsmenn mannsins brugðust við og reyndu að hemja hann með litlum árangri. Hillur með sælgæti og mynddiskum brotnuðu í átökunum og dreifðust um allt gólf. Lögregla var að lokum kvödd til og handtók hún manninn. „Þetta var auðvitað afskaplega óeðlileg hegðun sem maðurinn sýndi af sér,“ segir Jón Halldórsson, framkvæmdastjóri sölusviðs Olís. „Það er alveg á hreinu að hann er ekki velkominn í vinnu hjá okkur aftur,“ segir Jón en tekur þó fram að starfsmaðurinn hafi verið dagfarsprúður og ágætur starfsmaður. Þetta hafi komið öllum mjög á óvart. Mestu skipti að enginn hafi meiðst. Einn þeirra sem lentu í átökum við manninn í gær hafði samband við Fréttablaðið og sagðist myndu verða sér úti um áverkavottorð á slysadeild og kæra árásina. - sh
Mest lesið Ökumaður dráttarvélarinnar fluttur með þyrlu Innlent Fjögurra ára martröð Karlottu lauk með sýknudómi Innlent „Af hverju sit ég einn af öllum þessum mönnum fyrir framan dómara?“ Innlent Vill fá úr skorið hvort „annarlegar hvatir“ liggi að baki sniðgöngunni Innlent Verzlingar settu upp húfur og skelltu sér til Krítar Innlent Stærsti óttinn varð að veruleika á þriðja degi af 90 Innlent Lét öllum illum látum og fær engar bætur Innlent Tjaldaði á túni í miðborg Reykjavíkur Innlent Náðar raunveruleikastjörnur sem sviku tugmilljónir dala út úr bönkum Erlent Fólk flytur á landsbyggðina fyrir ódýrara húsnæði og rólegra umhverfi Innlent Fleiri fréttir Átta nemendur með ágætiseinkunn Margt til fyrirmyndar á Íslandi en gerir athugasemd við einangrunarvistun ódæmdra fanga Oscar fluttur úr landi á þriðjudag Sveitastjóraskipti í Reykhólahreppi Stærsti óttinn varð að veruleika á þriðja degi af 90 Fasteignamat fyrir 2026: Seltjarnarnes hástökkvarinn á höfuðborgarsvæðinu Tjaldaði á túni í miðborg Reykjavíkur Samrunatillögur bankanna og sjóveikur sundkappi Ökumaður dráttarvélarinnar fluttur með þyrlu Viðja bar sex lömbum takk fyrir „Af hverju sit ég einn af öllum þessum mönnum fyrir framan dómara?“ Dúxinn greip í saxófóninn Fjögurra ára martröð Karlottu lauk með sýknudómi Bein útsending: Uggandi yfir breytingum á Heiðmörk Úrslit hjá sósíalistum nær nákvæmlega eftir leiðbeiningum Dró vélarvana fiskibát að landi nærri Grindavík Bein útsending: Norðurslóðir í breyttum heimi Verzlingar settu upp húfur og skelltu sér til Krítar Óttast að stefna Trump-stjórnarinnar fæli námsmenn frá Bandaríkjunum Ísland verði að hafa skoðun á vörnum NATO við landið Fasteignamatið hækkar og áhyggjufullir námsmenn Staðfesta byggingaráform á Fannborgar- og Traðarreit Fólk flytur á landsbyggðina fyrir ódýrara húsnæði og rólegra umhverfi Kanna hvort ástæða sé til að endurvekja kjörstað í Fljótum Vill fá úr skorið hvort „annarlegar hvatir“ liggi að baki sniðgöngunni „Vestfirska efnahagsævintýrið“ í hættu verði veiðigjöldin hækkuð „Allsvakalega vímaður og ölvaður“ kallaði lögreglumenn „fagga og tíkur“ Sparnaðurinn bitni á fjölskyldum Málið alvarlegra en stjórnmálamenn gera sér grein fyrir Frystir Facebook hópinn og rýfur tengsl við Sósíalistaflokkinn Sjá meira