Endurreisn Gaza kostar 400 milljarða króna 20. janúar 2009 12:52 Ahmad Yousef.
Það mun kosta jafnvirði nærri fjögur hundruð milljarða króna að endurreisa Gaza að mati helsta ráðgjafa Hamas-stjórnarinnar á svæðinu. Í viðtali við fréttastofu segir hann að tryggja þurfi eðlilega vöruflutninga til og frá svæðinu eigi það ekki að leggjast í eyði. Frá því vopnahlé Ísraela og Hamas-samtakanna á Gaza tók gildi um helgina hafa íbúar á svæðinu grafið í rústum eftir líkum ástvina sinna og snúið aftur til heimila sinna sem eru í mörgum tilvikum rústir einar. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kom til Gaza í morgun til að kanna ástandið. Hann fer einnig til Suður-Ísrael til að skoða þau svæði sem urðu fyrir eldflaugaárásum herskárra Palestínumanna á Gaza. Þrettán hundruð Palestínumenn hafa fallið í árásum Ísraela sem hófust í lok desember og lauk aðfaranótt sunnudags. Fimm þúsund heimili munu hafa eyðilagst að sögn Hamas-liða, sextán opinberar byggingar og tuttugu moskur munu einnig rústir einar. Doktor Ahmad Yousef er einn helsti ráðgjafi Hamas-stjórnarinnar á Gaza. Í viðtali við fréttastofu í morgun sagði hann að endurreisnarstarf á Gaza myndi kosta á bilinu tveir og hálfur til þrír milljarðar bandaríkjadala, jafnvirði nærri fjögur hundruð milljörðum íslenskra króna. Yousef segir að endurreisnarstarfið taki langan tíma. Mestu skipti að opið verði fyrir flutning á byggingavörum til Gaza yfir landamærin frá Ísrael eða Egyptalandi. Verði svo ekki geti fólk ekki sótt sement og annað sem þurfi og þá sé hætta á því að bæir á Gaza leggist í eyði og verði draugabæir. Nánar verður rætt við Ahmad Yousef í kvöldfréttum klukkan hálf sjö.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Fleiri fréttir Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Sjá meira