Kynlífið gerði kraftaverk 5. nóvember 2009 06:00 vel heppnuð tilraun Kristín Gígja og Eiríkur Birkir stunduðu kynlíf á hverjum degi í mánuð og sambandið batnaði til muna.fréttablaðið/Anton „
Tilraunin gerði stórt kraftaverk - ég mæli eindregið með þessu," segir Kristín Gígja Sigurðardóttir. Kristín Gígja og Eiríkur Birkir Ragnarsson, kærasti hennar, tóku þátt í kynlífstilraun útvarpsstöðvarinnar Kanans sem hófst fyrir tæpum mánuði. Tilraunin gekk út á að tvö pör stunduðu kynlíf einu sinni á dag í heilan mánuð og deildu svo reynslunni á nafnlausu bloggi á vefsíðu Kanans. „Fyrst var þetta algjör kvöð. Þetta var eiginlega partur af prógramminu hjá mér þó að hann hafi verið spenntur allan tímann," segir Kristín. „Eftir fyrstu vikuna fórum við að sjá breytingu á því hvernig við tölum saman og hvernig líf okkar í kringum heimilið og krakkana breyttist til batnaðar. Ég fór að vera ánægð með þetta og byrjaði að sýna frumkvæði, sem gerðist mjög sjaldan áður." Kristín og Eiríkur lýstu tilrauninni oft á afar berorðan hátt á blogginu. Eiríkur var til dæmis mjög ánægður með baðferð þegar farið var að síga á seinni hluta tilraunarinnar: „Ég ætla að tala um miðnæturstundina okkar Kristínar, sem var í baðkarinu hérna heima. Gott spjall á undan, sem er einstakur forleikur, og svo var látið allt vaða. Þetta var nýtt, spennandi og framandi," sagði hann. Tilrauninni lýkur á morgun, en Kristín býst þó ekki við að hún og Eiríkur hætti að stunda kynlíf daglega enda misstu þau ekki úr dag meðan á tilrauninni stóð, þrátt fyrir að vera bæði mjög upptekin. „Ég var einu sinni sofandi þegar hann kom seint heim og hann vakti mig bara," segir hún og hlær. „Þetta er ekki kvöð, okkur finnst þetta skemmtilegt og það er alltaf eitthvað nýtt hjá okkur. Á tímapunkti hættum við að spá í að stunda kynlíf vegna þess að við vorum í tilraun. Núna er það orðið spennandi. Við erum farin að tala meira saman á kvöldin áður en tilraunin er framkvæmd og forleikurinn okkar er djúpt og skemmtilegt spjall. Það er svo margt sem spilar inn í. Tilraunin er búin að bjarga miklu í okkar sambandi."atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Tónlist „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Lífið Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða Lífið Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Fleiri fréttir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Sjá meira