Of mörg fyrirtæki í landinu 27. nóvember 2009 05:45 frá fundinum Fulltrúar atvinnulífsins í pallborði á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs í gær sögðu óþolandi þegar bankarnir haldi lífi í illa stöndugum fyrirtækjum.Fréttablaðið/stefán
Ekkert mælir gegn því að bankarnir brjóti upp fyrirtækjasamstæður sem þeir taka yfir eða aðstoða við endurskipulagningu telji þeir fyrirtækin hafa markaðsráðandi stöðu. Slíkt kann að skila sér til neytenda. Þetta sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs um áhrif banka á rekstrarumhverfi fyrirtækja í gær. „Við endurskipulagningu fyrirtækja verður að horfa til samkeppnissjónarmiða. Bankarnir eiga að passa upp á að fyrirtæki í höndum þeirra brjóti ekki í bága við samkeppnislög. Þeir eiga því að brjóta þau upp,“ sagði Páll. Fleiri tóku undir með forstjóranum, ekki síst Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja. Hann sagði pláss fyrir færri fyrirtæki hér eftir efnahagshrunið og því sé eðlilegt að þau hverfi af markaði sem rekin hafi verið illa eða standi höllum fæti. Ekki eigi að halda lífi í illa stöddum fyrirtækjum. Linda B. Gunnlaugsdóttir, forstjóri A. Karlsson, sagði hátterni bankanna óþolandi, ekki síst þegar fyrirtækin sem komin séu í hendur bankanna leiti fyrir sér á nýjum markaði. Vísaði hún til þess að ritfanga- og skrifstofuvöruverslunin A4 tók að marka sér spor í ræstivörugeiranum eftir að viðskiptabankinn tók fyrirtækið yfir. - jab
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Fleiri fréttir Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sjá meira