Innlent

Dagskrá ríkisstjórnarfundar ekki birt annan fundinn í röð

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Stjórnarráðið við Lækjargötu.
Stjórnarráðið við Lækjargötu. Mynd/Pjetur
Dagskrá ríkisstjórnarfundar sem haldinn var í gær verður ekki birt eins og venjan er samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu. Engar nánari skýringar fengust á því.

Dagskrá síðasta ríkisstjórnarfundar var ekki heldur birt, en hann fór fram síðastliðinn föstudag.

Að öllu jöfnu ratar dagskráin á vef forsætisráðuneytisins skömmu eftir að fundum lýkur. Ríkisstjórnin fundar oftast tvisvar í viku, á þriðjudögum og föstudögum.

Dagskrá ríkisstjórnarfunda má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×