Oddaflug dr. Bjarna 13. júní 2009 04:15 Dr. Bjarni heyrði forseta Íslands á Vogi, Þórarinn Tyrfingsson, flytja skörulegt mál í útvarpi og við það skildu leiðir með Bjarna og áfenginu. fréttablaðið/arnþór
Einhver skæðasti myndlistarmaður þjóðarinnar - dr. Bjarni Þórarinsson - efnir til sjónþings sem heitir Oddaflug sirkilhyrninganna á menningarknæpunni Grand Rokk. „Menn hafa verið að vara mig við að nota orðið oddaflug. Segja það tengjast einhverju fyrirtæki Hannesar Smára. En hann á náttúrlega engan einkarétt á því orði um þetta fallega náttúrufyrirbæri," segir dr. Bjarni Þórarinsson sjónháttafræðingur. Fréttablaðið greip Bjarna, einhvern stórbrotnasta listamann þjóðarinnar, glóðvolgan á miðvikudag er hann var hengjandi upp sýningu á menningarknæpunni Grand Rokk - hans fimmta sjónþing þar en dr. Bjarni hefur efnt til rúmlega tuttugu sjónþinga á sínum litríka ferli. Og nú leikur allt á reiðiskjálfi. Því í sínum pælingum hvað varða sjónháttafræðina hefur dr. Bjarni uppgötvað tvígulinn. „Menn þekkja tígla. En ég hef nú skilgreint fyrirbærin „tvígull" og „þrígull". Allt rúmast þetta innan hringsins sem er þá alhyrningur," segir dr. Bjarni en sjónþing hans nú ber yfirskriftina Oddaflug sirkilhyrninganna. Bjarni hefur unnið hörðum höndum að þessu þingi, við innrömmun verka sinna, en Guðmundur Bjartmarsson kvikmyndagerðarmaður liðsinnti Bjarna við að koma verkunum á staðinn. Síðan er það að semja þá sinfóníu sem felst í því að raða sýningunni saman. Guðmundur Oddur er hægri hönd Bjarna við þann gjörning en mikið á eftir að bætast við. Sjálfur er Bjarni í gríðargóðu formi, betra formi en oft. „Árið 2009 verður stórt og mikið ár. Ég vann listsigur strax í upphafi árs. Árið byrjaði með trukki hjá mér. Og fleiri sýningar eru í pípunum. En það er komin hefð á að ég sýni hér á Grand Rokk. Hér hefur verið gerð hallarbylting. Meiri menningarbragur en oft. Hér er nýlokið menningarhátíð sem tókst mjög vel. Mörg athyglisverð atriði voru flutt af miklum metnaði. Sannleikurinn er sá að þetta er alþýðumótsstaður. En einnig er hér mikið af góðum listamönnum. Framúrskarandi listamönnum sem sækja staðinn. Og hér hefur kaffidrykkja aukist til mikilla muna," slær dr. Bjarni fram. Forvitnileg staðhæfing. Sem Bjarni skýrir meðal annars á þann hátt að sjálfur hafi hann ekki smakkað áfengi í tvo mánuði. „Ég heyrði forseta Íslands á Vogi, Þórarin Tyrfingsson, flytja skörulegt mál í útvarpi. Og þá skildu leiðir. Ég varð viðskila við áfengi. Hef verið í kaffinu síðan. Og stefni að því að verða útrásarvíkingur. Og þá meina ég: Alvöru útrásarvíkingur.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Fleiri fréttir Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Sjá meira