Tíundi hver kúabóndi í verulegum vanda 1. september 2009 18:43
Um 10% kúabænda eru í verulegum vanda staddir vegna mikillar skuldsetningar. Aukin harka er hjá fjármögnunarfyrirtækjum að sækja tæki og vélar vegna gríðarlegra skulda. Foystumenn í Bændasamtökum Íslands funduðu í Bændahöllinni í dag, en þar var farið yfir stöðuna í landbúnaðinum. Hún er langt frá því að vera góð og er sögð fara versnandi. Farið er að bera á lausafjárþurrð og jafnvel er gengið á eignir bænda til að innheimta skuldir. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir farið að bera á nauðungarsöluauglýsingum. „Við verðum varir við aukna hörku fjármögnunarleigufyrirtækja við að taka tæki sem þau hafa lánað í og leigt. Mörg teikn um að farið sé að herða að." Spurður hvort að staðan sé dökk segir Haraldur: „Já, hjá bændum eins og hjá mörgum öðrum í þessu þjóðfélagi." Staðan hjá kúabændum er einkum slæm. Um 10% þeirra eru í verulegum erfiðleikum, en á bak við þær tölur getur verið um 15 til 20% af framleiðslunni. En aðrar greinar eru einnig í vanda staddar. „Sauðfjárbændur hafa litla eða mjög lága innkomu og getur brugðið til beggja vona þegar forsendur þar breytast ," segir Haraldur. Lögð er áhersla á að bændur fái að njóta sömu úrræða og aðrir til að taka á greiðsluvanda sínum, svo unnt sé að koma búunum á réttan kjöl. Staðan er hins vegar viðkvæmari í sveitum landsins að því leytinu til að búin er í senn heimili og fyrirtæki bænda. En það er ljós í myrkrinu. „Þessar útflutningsgreinar okkar eru að skila meiri verðmætum og almennt er landbúnaðurinn samkeppnishæfari eftir breytingar á genginu og það eru líka sóknarfæri," segir Haraldur.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Sjá meira