Góð þátttaka á Vetrarhátíð 14. febrúar 2009 13:39 Norðlendingar komu í heimsókn í Höfuðborgarstofu og kynntu norðlenskan mat og spennandi möguleika í ferðaþjónustu.
Safnanótt tókst með eindæmum vel og þátttaka hefur sennilega aldrei verið jafnmikil og lagði mikinn fjölda fólks leið sína á söfn borgarinnar og á sýningar og viðburði gærkvöldsins, samkvæmt Skúla Gautasyni hjá Höfuðborgarstofu. Fullt var út úr dyrum á tónleikum Voces Thules í Iðnó, í Fríkirkjunni kom Sextett Ólafs Gauks fram eftir langt hlé og sýndi að þeir hafa engu gleymt, Kirkjan var troðfull. Það var staðið í öllum göngum og sungið með í öllum lögum. Í Norræna húsinu þurfti fjöldi fólks frá að hverfa og sömu sögu er að segja úr Ásmundarsafni, þar lék hljómsveitin Amiina sér með skemmtilegt hljóðrými safnsins. Í Listasafni Reykjavíkur kom mikill fjöldi fólks og fylgdist með dansgjörningum Kramhússins en hvarf þess á milli inn í annan tíma með því að leggast á sólstóla og horfa upp í Sumarhimin Óskars Ericssonar. Það var mikil þátttaka í Safnanæturleiknum, enda sérlega veglegur vinningur í boði. Dagskrá Vetrarhátíðar heldur áfram Í dag heldur dagskrá Vetrarhátíðar áfram. Á Heimsdegi barna í Gerðubergi verða fjölbreyttar smiðjur, Söngskólinn er með tónleika allan eftirmiðdaginn, Lúðrasveit verkalýðsins heldur barnatónleika í Íslensku óperunni og á Kærleikunum æfum við okkur í væntumþykju og hlýjum hugsunum. Þeir hefjast klukkan 18 á Austurvelli. Lokaatriði Vetrarhátíðar verða svo tónleikar grænlensku hljómsveitarinnar Liima inui í Norræna húsinu upp úr klukkan 22.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira