Tólf tilnefndir til Blaðamannaverðlaunanna 14. febrúar 2009 11:01 Verðlaunahafarnir 2004. Þá hlutu Agnes Bragadóttir, Brynhildur Ólafsdóttir og Reynir Traustason verðlaunin.
Dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna hefur komið sér saman um þrjár tilnefningar í hverjum af hinum þremur flokkum verðlaunanna. Tólf eru tilnefndir til verðlaunanna í ár. Meðal þeirra eru Sigrún Davíðsdóttir, Erla Hlynsdóttir og Sigurjón M. Egilsson. Kristján Már hlaut verðlaunin í fyrra Kristján Már Unnarsson, fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2, fékk blaðamannaverðlaunin í fyrra. Jóhannes Kr. Kristjánsson og Kristinn Hrafnsson í Kompás fengu verðlaun fyrir bestu umfjöllun ársins. Ritstjórn DV, Þóra Tómasdóttir og Sigmar Guðmundsson í Kastljósi deildu svo verðlaunum fyrir bestu rannsóknarblaðamennskuna. Verðlaunin verða veitt eftir viku Á laugardaginn eftir viku verður tilkynnt um hverjir verðlaunahafarnir eru í hinum einstöku flokkum, en einn hinna tilnefndu í hverjum flokki fær verðlaunin. Tilnefningar dómnefndar eru þessar: Blaðamannaverðlaun ársins 2008 - Jóhann Hauksson, DV, fyrir fréttaskrif og umfjöllun um mikilvæg þjóðfélagsmál sem báru vitni um mikil tengsl, reynslu og skilning, og voru iðulega fyrstu fréttum af málum. Dæmi um slíkt voru skrif Jóhanns um samkomulag íslenskra stjórnvalda og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. - Sigrún Davíðsdóttir, RÚV -Spegillinn, fyrir pistla þar sem nýjum hliðum á fjölmörgum málum - m.a. í tengslum við bankahrunið og áhrif þess erlendis - var velt upp og þau sett í nýtt og upplýsandi samhengi. - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, mbl.is, fyrir vandaðar fréttir á mbl.is þar sem hún nálgaðist frumlega málefni líðandi stundar og netmiðillinn var nýttur með nýjum hætti í íslenskri fjölmiðlun. Rannsóknarblaðamennska ársins 2008 - Atli Már Gylfason og Trausti Hafsteinsson, DV, fyrir ítarlega og afhjúpandi umfjöllun um kynþáttafordóma meðal ungs fólks á Suðurnesjum og margvísleg áhrif þeirra. - Brynjólfur Þór Guðmundsson og Erla Hlynsdóttir, DV, fyrir ítarleg og samfelld skrif og greiningu á eftirlaunum ráðamanna og áhrifum eftirlaunafrumvarpsins. - Sigurjón M. Egilsson, Mannlíf og Bylgjan, fyrir vandaðar og ítarlegar greinar um íslenskt efnahagsástand í Mannlífi, þar sem mál voru krufin með ítarlegri hætti en títt er í íslenskum fjölmiðlum. Samhliða stýrði Sigurjón útvarsþætti á Bylgjunni, þar sem íslensk þjóðmál voru í brennidepli. Besta umfjöllun ársins 2008 - Baldur Arnarson, Morgunblaðið, fyrir greinaflokkinn Ný staða í norðri, þar sem farið var yfir þær náttúrufarslegu, efnahagslegu, félagslegu og pólitísku breytingar, sem hlýnun andrúmslofts og breytt staða á norðurslóðum hefur í för með sér. - Brjánn Jónasson, Fréttablaðið, fyrir upplýsandi og vel fram sett skrif um framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, þar sem fjallað var um málið og aðdraganda þess. - Ragnar Axelsson og Önundur Páll Ragnarsson, Morgunblaðið, fyrir umfjöllun um virkjunarkosti á Íslandi. Þar voru dregnir fram með öflugri samvinnu texta og mynda kostir og gallar hvers virkjunarkosts um sig og málið sett í skipulagt samhengi.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira