Barðastrandarræningjum líklegast sleppt úr haldi 3. júní 2009 11:13
Ólíklegt er að farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðald yfir Barðarstrandarræningjunum svokölluðu. Gæsluvarðhald yfir mönnunum rennur út í dag en þeir hafa verið í gæsluvarðhaldi frá 27. maí. Mennirnir brutust inn til manns á áttræðisaldri mánudagskvöldið 25. maí en maðurinn er búsettur að Barðaströnd á Seltjarnarnesi. Þegar húsráðandinn kom heim heyrði hann umgang á efri hæð hússins. Stuttu síðar mætti hann manni sem sló hann í andlitið, batt hann á höndum og fótum með límbandi. Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, reiknar ekki með því að farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir mönnunum sem eru báðir tvítugir. Ránið á Barðaströnd var annað ránið á skömmum tíma þar sem ráðist var á húsráðendur og þeim haldið í gíslingu. Fyrra ránið var á Arnarsnesi þar sem ráðist var á eldri hjón og þeim haldið í gíslingu og meðal annars klippt á símalínur. Aðilar þess máls eru hinsvegar í gæsluvarðhaldi til 16. júní. Ástæða þess að gæsluvarðhald í því máli er lengra en í Barðarstrandarmálinu er að sögn Ómars sú að málin eru í eðli sínu ólík. Einna helst vegna þess að í málinu á Arnarnesi var það ásetningur ræningjanna að ráðast á húsráðendur. Í Barðarstrandarmálinu hafi það hinsvegar ekki verið ætlunin, heldur hafi húsráðandi komið heim ræningjunum að óvörum. Þriðji maðurinn var einnig handtekinn í tengslum við ránið að Barðaströnd en honum sleppt fljótlega þar sem hann var einungis talinn geta veitt upplýsingar um ránið en ekki tekið þátt í því. Sami maður braust hinsvegar inn á heimili í Lækjarhvammi í Hafnarfirði daginn eftir að hann losnaði úr haldi vegna Barðarstrandarránsins. Þar réðist hann á 17 ára pilt sem náði að komast undan á hlaupum meðan ræningjarnir athöfnuðu sig.
Tengdar fréttir Barðastrandaárás: Ræningjar í vikulangt gæsluvarðhald Piltarnir sem brutust inn i einbýlishús við Barðaströnd á Seltjarnarnesi á mánudaginn og réðust á húsráðanda sem þar býr, voru nú síðdegis úrskurðaðir í gæsluvarðahald til 3. júní. 27. maí 2009 18:18 Sonur minn er hetja „Sumir hefðu líklega lyppast niður og ekki getað gert neitt, en Viktor sýndi að hann kann að bregðast rétt við í hættuástandi. Ég er mjög stolt af honum og finnst hann vera hetja,“ segir Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir, sem býr ásamt manni sínum, Leifi Birni Björnssyni, og börnum við Lækjarhvamm í Hafnarfirði. 2. júní 2009 04:15 Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Sjá meira
Barðastrandaárás: Ræningjar í vikulangt gæsluvarðhald Piltarnir sem brutust inn i einbýlishús við Barðaströnd á Seltjarnarnesi á mánudaginn og réðust á húsráðanda sem þar býr, voru nú síðdegis úrskurðaðir í gæsluvarðahald til 3. júní. 27. maí 2009 18:18
Sonur minn er hetja „Sumir hefðu líklega lyppast niður og ekki getað gert neitt, en Viktor sýndi að hann kann að bregðast rétt við í hættuástandi. Ég er mjög stolt af honum og finnst hann vera hetja,“ segir Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir, sem býr ásamt manni sínum, Leifi Birni Björnssyni, og börnum við Lækjarhvamm í Hafnarfirði. 2. júní 2009 04:15