Innlent

Sonur minn er hetja

Þjófarnir komust inn um opna svalahurð á heimili Steinunnar og fjölskyldu. Hún segir mikilvægast að allir séu heilir á húfi.fréttablaðið/anton
Þjófarnir komust inn um opna svalahurð á heimili Steinunnar og fjölskyldu. Hún segir mikilvægast að allir séu heilir á húfi.fréttablaðið/anton

„Sumir hefðu líklega lyppast niður og ekki getað gert neitt, en Viktor sýndi að hann kann að bregðast rétt við í hættuástandi. Ég er mjög stolt af honum og finnst hann vera hetja,“ segir Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir, sem býr ásamt manni sínum, Leifi Birni Björnssyni, og börnum við Lækjarhvamm í Hafnarfirði.

Viktor Már Leifsson, sautján ára sonur þeirra hjóna, komst undan á flótta undan barsmíðum og frelsissviptingu þegar brotist var inn á heimilið á sunnudagseftirmiðdag. Tveir menn um tvítugt voru handteknir grunaðir um verknaðinn. Annar þeirra kom við sögu í hrottafengnu innbroti við Barðaströnd á Seltjarnarnesi í síðustu viku. Þeir hafa báðir verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald.

Viktor var sofandi í herbergi sínu þegar hann heyrði umgang. Þegar fram kom gekk hann fram á mann sem var að setja tölvur og fleiri muni í poka. Viktor reyndi að tala við og róa manninn, sem var greinilega undir áhrifum eiturlyfja að sögn Steinunnar. Þjófurinn réðst að Viktori, sló og sparkaði í hann, og skipaði honum að halda sig í jörðinni og hélt svo iðju sinni áfram. Þegar færi gafst tók Viktor á rás og tókst með snarræði tvisvar sinnum að skella hurðum á hendur þjófsins þegar hann var í þann mund að ná Viktori. Hann komst svo í nálægt hús þar sem hringt var á lögreglu.

Þjófurinn komst undan með fartölvu. Hann og vitorðsmaður hans voru handteknir stuttu síðar í nágrenninu. Þeir eru grunaðir um að vera viðriðnir að minnsta kosti fimm önnur innbrot að undanförnu, þar á meðal því á Seltjarnarnesi. Þar var karlmaður á áttræðisaldri beittur ofbeldi.

Steinunn segir hafa betur farið en á horfðist. „Viktori líður vel en þetta var auðvitað mikið áfall. Hann brást hárrétt við með því að berjast ekki á móti þjófinum í byrjun, sem hann hefði vel getað gert því hann hefur æft sjálfsvarnaríþróttir. Maður veit aldrei hverju menn undir áhrifum fíkniefna taka upp á.“

Steinunn segir vikuna hafa verið viðburðaríka, því hún og maður hennar misstu bæði vinnuna á miðvikudag, hann hjá tölvufyrirtæki og hún sem aðstoðarsjónvarpsstjóri ÍNN. „Þetta eru þrjú áföll í röð. Tími breytinga en líka nýrra tækifæra sem bíða. Það mikilvægasta er að allir eru heilir á húfi og hafðar voru hendur í hári manna sem þurfa greinilega á hjálp að halda,“ segir Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir.

kjartan@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×