Innlent

Ásmundur og Guðfríður vilja Icesave í þjóðaratkvæðagreiðslu - Ögmundur og Lilja á móti

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG, vill að Icesave lögin fari í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Atkvæði voru greidd um breytingartillögu við Icesave frumvarpið þess efnis að málið yrði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ásmundur Einar sagði að ef tillagan fengist ekki samþykkt myndi hann fara í hliðarsal Alþingis og skrá sig á lista Indefence á netinu til þess að hvetja forseta Íslands til þess að vísa málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Guðfríður Lilja kaus jafnframt með breytingatillögu við frumvarpið um að lögin fari í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Lilja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson greiddu hins vegar atkvæði gegn þjóðaratkvæðageiðslu.

Tillaga um að vísa málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu var felld með 33 atkvæðum gegn 30.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×