Löggan vill betri umgengni í miðborginni 30. desember 2009 13:20 Lögreglan hvetur fólk til að ganga betur um miðborgina svo ekki þurfi að blasa við sýn líkt og sjá má á myndinni hér að neðan en hún var tekin í miðborginni á sunnudagsmorgni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til að ganga betur um miðborg Reykjavíkur því sérhvern morgun um helgar sópi hópar hreingerningarmanna upp drasl eftir fullorðið fólk sem átt hafi leið um miðborgina. „Ásýnd svæðisins minnir meira á svínastíu en stræti og torg manna; hvarvetna brotnar flöskur og glös, tómar bjórdósir, pappa- og blaðarusl, ælur og hland í bland,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni. Lögreglan biður fólk vinsamlega um að bæta um betur, losa sig við ruslið í þar til gerðar fötur, nýta útisalerni og reyna í alla staði að ganga þannig um að til fyrirmyndar geti talist. Þá eru veitingamenn og dyraverðir minntir á að gestum er óheimilt að bera áfengi, til dæmis í glösum og flöskum, út af veitingastöðunum. Alvarlegir andlitsáverkar hafi hlotist af þegar þungum glerbjórglösum hafi verið kastað að fólki, auk þess sem brothljóðum, þegar glös lenda í veggjum og gangstéttum, fylgir mikið ónæði fyrir nálæga íbúa.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira