Borgarstjórn samþykkti siðareglur Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. október 2009 16:33 Borgarstjórn samþykkti siðareglur borgarfulltrúa í dag. Mynd/ Vilhelm.
Borgarstjórn Reykjavíkur staðfesti siðareglur fyrir kjörna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg á fundi sínum í dag. Borgarfulltrúar allra flokka að frátöldum Ólafi F. Magnússyni greiddu siðareglunum atkvæði sitt og skrifuðu undir þær á fundinum. Í tilkynningu frá borgarstjórn kemur fram að markmið reglnanna sé að skrá og skilgreina þá háttsemi sem kjörnir fulltrúar vilji sýna af sér við öll sín störf. Í þeim sé m.a. fjallað um starfsskyldur kjörinna fulltrúa, valdmörk, hagsmunaárekstra, gjafir, fríðindi og trúnað. Með undirskrift sinni undirgangast fulltrúarnir siðareglurnar og lýsa því þar með yfir að þeir ætli að hafa þær að leiðarljósi í störfum sínum fyrir Reykjavíkurborg. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, minnti á að siðareglurnar væru safn leikreglna sem ætlað væri að festa í sessi öguð og vönduð vinnubrögð, eyða tortryggni og koma í veg fyrir hagsmunaárekstra. Í tilkynningu frá Degi B. Eggertssyni, oddvita Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir að mikilvægt sé að sveitarstjórnarlögum verði breytt í framhaldinu og sameiginleg siðanefnd stofnuð á vettvangi Sambands sveitarfélaga. Þá sé mikilvægt að reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum og fleiru sem nú verði sendar til forsætisnefndar verði staðfestar á vettvangi borgarstjórnar, eins fljótt og kostur sé.
Mest lesið Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Innlent Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Brestir í MAGA-múrnum Erlent Fleiri fréttir Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Umdeildur athafnamaður og vendingar á vinstri væng Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Sjá meira