Mikilvægt að verja löggæsluna Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. október 2009 10:30 Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri. „
Nauðsynlegt er að fara varlega við fyrirhugaðar breytingar á skipan lögreglumála sem nú eru í undirbúningi," segir Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri. Í inngangi sem Haraldur ritar að ársskýrslu embættisins segir hann að mikilvægt sé að stjórnvöld íhugi vel sérhvert skref sem stigið verður í þeim efnum svo að koma megi í veg fyrir að sú mikla uppbyggingarvinna sem átt hafi sér stað á undanförnum árum fari forgörðum. Haraldur segir í pistli sínum að reynsla undanfarinna ára sýni ljóslega að veruleikinn breytist dag frá degi. Aldrei hafi verið jafnmikilvægt og nú að verja þá öflugu löggæslu sem lögreglumenn um allt land reyna af fremsta megi að standa vörð um. Framtíðin muni að öðru leyti dæma um hvernig til tekst.Segir starfsmenn efnahagsbrotadeildar hafa mátt þola níð Þá segir Haraldur að í kjölfar bankahrunsins hafi vel undirbúnir og þjálfaðir lögreglumenn staðið vaktina svo að aðdáun veki. Á slíkum lögreglumönnum þurfi þeir að halda. „Starfsmenn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra hafa sýnt aðdáunarvert andlegt þrek við rannsóknarstörf sín, m.a. í þeim fyrirferðarmiklu og altöluðu málum sem þeim hafa verið falin til úrlausnar á undanförnum árum. Þeir hafa þolað ómaklegar árásir, persónulegt níð og jafnvel hótanir á opinberum vettvangi án þess að bera hönd fyrir höfuð sér," segir Haraldur.Löggjöfin dugði ekki til Hann segir að þegar frá líði og sagan verði skoðuð muni þó enginn efast um að starfsmenn embættisins hafi ætíð unnið í samræmi við gildandi lög og sinnt störfum sínum af fagmennsku og með réttsýni að leiðarljósi. Þó sé ljóst að gera þurfi ýmsar breytingar á löggjöf ef aukinn árangur eigi að nást við sakfellingar í efnahagsbrotamálum. Löggjöf sem ætlað hafi verið að veita viðskiptalífinu aðhald og skýr mörk hafi ekki dugað til samkvæmt niðurstöðum dómstóla.
Mest lesið Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglundar Innlent „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Innlent Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Innlent Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Innlent Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Innlent „Mæta á næstu Palestínumótmæli og berja þetta lið“ Innlent Afar mjótt á munum hjá forsetaframbjóðendum í Póllandi Erlent Segja ógnarstjórn ríkja á Þjóðminjasafninu Innlent Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi Innlent Missa fatamarkaðinn með flutningi Konukots í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Tvenn mótmæli í Reykjavík og herþota á flugsýningu „Mæta á næstu Palestínumótmæli og berja þetta lið“ Missa fatamarkaðinn með flutningi Konukots í Ármúla „Glútenóþol var orðið óhreinn hattur yfir þetta allt saman“ Ók hlaupahjólinu á tré með pizzu í annarri Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglundar Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Hefur skilning á báðum sjónarmiðum í Heiðmerkurmálinu Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Umferðartafir vegna framkvæmda við Kringlumýrarbraut í sumar Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Býður til flugveislu á Reykjavíkurflugvelli Sóttu veikan mann í rússneskan togara Lækkandi fæðingartíðni er vandamál sem leysist ekki án innflytjenda Rannsókn lokið í manndrápsmáli Lögðu hald á nokkuð magn fíkniefna og hnífa Sláandi tölur: Kyrkingartökum og eltihrellum fer fjölgandi Mætti með steikarhníf á leikskóla Kyrkingartök og elltihrellahegðun fara vaxandi og myndband af áreitni í miðborginni Grill í ljósum logum úti á svölum Vilja endurbyggja verkstæðið en nágrannar mótmæla harðlega Margra kílómetra bílaröð eftir árekstur á Vesturlandsvegi Halda framkvæmdastjóra Félagsbústaða þrátt fyrir alvarlegt vantraust Telja að maðurinn sé fundinn „Þetta er mjög þungt og erfitt“ „Ég vara mjög við því að menn beiti þessu úrræði“ „Verið að búa til óseðjandi kerfi þar sem bátum mun fjölga“ Eldur kviknaði í vörubíl á Reykjanesbraut Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi „Yndisleg kvöldstund í þessum þunga harmi okkar“ Sjá meira