Njósnað um FM Belfast á Nasa 20. október 2009 02:00 árni plúseinn Hljómsveitin FM Belfast er undir smásjá erlends stórfyrirtækis. „
Hann er örugglega með númerið mitt," segir Árni Plúseinn úr hljómsveitinni FM Belfast. David Levy, útsendari frá hinu virta umboðs- og afþreyingarfyrirtæki William Morris Endeavor, var staddur á Nasa á laugardagskvöldið þar sem hann njósnaði um FM Belfast á Iceland Airwaves-hátíðinni. Árni kannast við áhuga fyrirtækisins, sem hefur haft stórlaxa á borð við The Rolling Stones, Eminem og Britney Spears á sínum snærum. Einnig eru þar á mála leikstjórarnir Quentin Tarantino og Baltasar Kormákur, sem nýverið gerði við það umboðssamning. „Ég heyrði þetta en hann hefur ekkert spjallað við mig beint, ekki enn þá," segir Árni, sem hefur heyrt góða hluti um fyrirtækið: „Þetta var útskýrt þannig fyrir mér að Elvis Presley hafi verið hjá þeim." Hann segir að tónleikarnir á Nasa hafi verið mjög vel heppnaðir. „Það voru mikil læti. Ég hef sjaldan séð svona mikið af fólki á svona litlum stað." David Levy nýtti einnig tækifæri og skoðaði bandaríska tríóið Jessica 6, sem spilaði á Nasa sama kvöld og FM Belfast, og dönsku söngkonuna Oh Land í Listasafni Reykjavíkur. Fór hann síðan af landi brott skömmu síðar. Róbert Aron Magnússon hjá Iceland Airwaves segir að hátíðin hafi heppnast einstaklega vel. Samningur Hr. Örlygs við Icelandair er að renna út og staðfestir Róbert að nýr samningur verði undirritaður á næstu vikum. Hátíðin verður því haldin að ári liðnu. „Að sjálfsögðu komum við sterkir inn á næsta ári. Við viljum reyna að tilkynna fyrstu hljómsveitirnar fljótlega eftir áramót og erum strax farnir að skoða," segir hann. - fb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Sjá meira