Stefnir Airbus vegna Air France-slyssins Atli Steinn Guðmundsson skrifar 20. október 2009 07:16 Brak úr vélinni kemur til hafnar.
Bandarískur lögmaður hefur stefnt Airbus-flugvélaverksmiðjunum og nokkrum fyrirtækjum sem framleiða hluti í Airbus vélar og krafist bóta vegna dauða átta af þeim farþegum sem fórust í Air France-slysinu 1. júní. Tæplega 230 manns fórust þegar vél franska flugfélagsins Air France steyptist í Atlantshafið eftir að hafa flogið inn í óveðursský á leið sinni frá Brasilíu til Frakklands. Flugritar vélarinnar fundust aldrei þrátt fyrir að þeirra væri leitað í rúmlega mánuð en talið er að vélin hafi ekki verið í fullkomnu lagi og hafi svokallaðir hraðaskynjarar ekki virkað sem skyldi. Floyd Wisner heitir lögmaðurinn sem höfðar málið en hann beitir fyrir sig lögum Illinois-ríkis um ranglátan dauðdaga, svonefndum Wrongful Death Act, og höfðar bótamálið fyrir hönd fjölskyldna farþega sem voru frá Ungverjalandi, Argentínu, Frakklandi og fleiri löndum. Talsmaður Airbus-verksmiðjanna sagði í svari við fyrirspurn Reuters-fréttastofunnar um málið að stefna fyrirtækisins væri að tjá sig ekki um stefnur á hendur því en hjá Honeywell International, sem framleiðir hluti í flugvélar, þar á meðal Airbus, fengust þau svör að engin gögn bentu til þess að nokkur búnaður frá því fyrirtæki hefði verið gallaður á nokkurn hátt. Þar sem stórir hlutar vélarinnar hefðu ekki fundist og ekki flugritarnir heldur væri stefnan algjörlega byggð á getgátum.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira