Fáfnir opnar nýtt klúbbhús 4. mars 2009 19:57
Vélhjólaklúbburinn Fáfnir ætlar að opna nýtt klúbbhús í Hafnarfirði um næstu helgi. Fáfnir er opinber stuðningsklúbbur Hell's Angels klíkunnar sem ítrekað hefur reynt að ná fótfestu hér á landi. Fáfnismenn voru áður með klúbbhús við Frakkastíg í miðbæ Reykjavíkur. Það hús komst í fréttirnar í nóvember árið 2007 þegar lögreglan réðst þar til inngöngu vegna fikniefnarannsóknar. Sérsveit lögreglunnar tók þátt í aðgerðinni þar sem sérstök hætta var talin stafa af meðlimum klúbbsins. Fáfnir er opinber stuðningsklúbbur Hell's Angel klíkunnar á Norðurlöndum sem meðal annars hefur verið bendluð við skipulagða glæpastarfsemi. Hell's Angels - eða Vítisenglar hafa í fjölmörg ár reynt að ná fótfestu hér á landi og hefur lögreglan margoft vísað meðlimum samtakanna úr landi. Í apríl á síðasta ári var lögreglan með mikinn viðbúnað á Leifsstöð þegar hingað kom hópur Vítisengla til að vera viðstaddur veisluhöld á vegum Fáfnis. Í skýrslu ríkislögreglustjóra um hryðjuverk og skipulagða glæpastarfsemi hér á landi er sérstaklega vikið að Fáfnir og tengslum þeirra við Vítisengla. Fáfnismenn misstu húsnæði sitt við Frakkastíg á síðasta ári þegar leigusamningur rann út. Síðan þá hafa þeir verið á vergangi ef svo má að orði komast. Nú hafa þeir komið sér fyrir í Hafnarfirði og ætla að opna klúbbhúsið formlega næstu helgi. Hefur fjölmörgum verið boðið að taka þátt í veisluhöldunum.Ekki liggur þó fyrir hvort Vítisenglar mæti í gleðskapinn. Fáfnismenn voru í óða önn að leggja lokahönd á klúbbhúsið þegar fréttastofu bar að garði í dag. Klúbbhúsinu fylgir bílageymsla sem Fáfnismenn ætla að nota til tónleikahalds. Að sögn talsmanna klúbbsins hafa bæjaryfirvöld í Hafnarfirði veitt sitt samþykki sem og lögreglan.
Mest lesið Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Innlent Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Innlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Innlent Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Innlent Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent Fleiri fréttir Varað við bikblæðingum um land allt Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Tilraun með ræktun hveitis á Íslandi gefur góð fyrirheit Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Ekki hissa á góðu gengi Ísrael og innsetningarmessa páfans Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Staðan í hagkerfinu og alþjóðamálin Eins og að vera fangi í eigin líkama Þrír réðust á ungan mann í Árbænum og flúðu á brott Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Framtíðar kvikmyndagerðarfólk í Sunnulækjarskóla á Selfossi Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sjá meira