Tap lífeyrissjóða meira en áður hefur verið greint frá 15. janúar 2009 18:43
Tap lífeyrissjóða landsins verður tug milljörðum króna meira en áður hefur verið greint frá. Eignir lífeyrissjóða í skuldabréfum fyrirtækja, sem sum hver eru í greiðslustöðvun, hafa ekki verið afskrifaðar. Lífeyris - og peningamarkaðssjóðir héldu atvinnulífinu gangandi með kaupum á skuldabréfum sem fyrirtæki gáfu út. Þó að í sumum tilvikum séu skuldabréf með tryggum veðum þá er algengara að skuldabréfin hafi verið með veði í sjóðsstreymi fyrirtækjanna. Það þýðir að ef fyrirtækin fara í þrot eru engin veð fyrir fjárfestingunni. Lífeyrissjóðirnir munu þá þurfa að gera almenna kröfu í þrotabúið og koma því á eftir þeim fyrirtækjum sem eiga kröfur með veðum. Til að gefa innsýn í hvaða upphæðir um ræðir skulum við taka dæmi af tveimur fyrirtækjum. Fjögur skuldabréf í Samson eignarhaldsfélagi, sem nú er í greiðslustöðvun, eru virk. Hér má sjá hvenær skuldabréfin renna út en heildarupphæð þeirra eru 22 milljarðar. Landic Property, þar sem Stoðir eru stærsti hluthafinn með um 40% hlut, er einnig með fjögur virk skuldabréf upp á samtals 24 og hálfan milljarð. Þar af rennur skuldabréf upp á rúma 7 milljarða út þann 6. Mars næstkomandi. Stoðir, stærsti hluthafi Landic, er nú í greiðslustöðvun. Ekki er hægt að nálgast upplýsingar um hversu stóran hlut Lífeyrissjóðirnir keyptu af þessum skuldabréfum en gegnumgangandi hafa skuldabréf í fyrirtækjum verið í kringum 10% af fjárfestingum lífeyrissjóða. Þessar fjárfestingar hafa verið afskrifaðar í séreignasjóðunum en ekki samtryggingarsjóðunum. Tölur um tap sjóðanna eftir hrunið hafa því verið villandi. Landssamtök Lífeyrissjóða fékk tilmæli frá Fjármálaeftirlitinu að hlutast til um að uppgjör skuldabréfa væri samræmt hjá lífeyrissjóðum. Samtökin funduðu með stærstu sjóðunum og samkvæmt heimildum fréttastofu munu sjóðirnir ekki verða við tilmælum Fjármálaeftirlitsins nema með óformlegum hætti. Heimildir fréttastofu herma að unnið sé að því að meta afskriftarþörf lífeyrissjóðanna og muni þeirri vinnu verða lokið í byrjun febrúar. Þá mun koma í ljós hvort og hve mikið lífeyrisréttindi sjóðsfélaga skerðast.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira