Ljósmæður mótmæla breytingum í heilbrigðiskerfinu 15. janúar 2009 16:51 Ljósmæður
Ljósmæðrafélag Íslands mótmælir fyrirhuguðum breytingum í heilbrigðiskerfinu sem snúa að þjónustu við konur og fjölskyldur þeirra í barneignarferli. Ljóst er að enn fleiri konur en áður munu þurfa að fæða börn fjarri heimili sínu og að breytingarnar munu hafa veruleg áhrif á þá samfélagsgerð sem íslenskar fjölskyldur hafa búið við. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ljósmæðrafélagi Íslands þar segir ennfremur að breytingarnar muni sérstaklega bitna á íbúum nágrannabyggða höfuðborgarsvæðisins. „Sá hraði og þau vinnubrögð sem heilbrigðisráðherra hefur beitt í ferlinu eru alls ekki ásættanleg. Starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar hefur ekki verið haft með í ráðum og er það mjög miður því að mörgu er að hyggja við breytingar á þjónustustigi í fæðingarhjálp í strjábýlu og oft á tíðum, torfæru landi . Heilbrigðisyfirvöld beita fyrir sig efnahagsþrengingum sem ganga yfir en búast má við að sá sparnaður sem ætlað er að ná fram, muni á endanum valda auknum samfélagslegum kostnaði. Sem dæmi má nefna útgjöld fjölskyldna sem neyðast til að flytja búferlum meðan beðið er eftir barnsfæðingu, en það blasir við miklum fjölda fólks. Ef fyrirhuguð skerðing á þjónustu nær fram að ganga, mun hún hafa áhrif bæði á landsbyggðinni og á stærsta fæðingastað landsins í Reykjavík vegna aukins álags á starfsemina. Ef verður af ætluðum niðurskurði, leggja ljósmæður áherslu á að þétta net og vernda nauðsynlega nærþjónustu heilbrigðisfagsfólks þegar nýr einstaklingur er væntanlegur í heiminn. Stéttin mun ekki sætta sig við að fólk á barneignaraldri verði af nauðsynlegri grunnþjónustu ljósmæðra sem felst í sólarhringsaðgengi foreldra að faglegri þjónustu á sviði meðgönguverndar, umönnunar sængurkvenna, ungbarna og brjóstagjafar, ekki síður en því sem snýr að fæðingunni sjálfri. Ljósmæður munu ávallt vera til staðar fyrir konur sem þarfnast þjónustu þeirra og leggja sinn faglega metnað í að tryggja öryggi nýrra þegna og fjölskyldna þeirra. Ljósmæðrafélag Íslands vonast til að stjórnvöld beri gæfu til að boðaðar breytingar á skipulagi heilbrigðisþjónustu verði endurskoðaðar og endurunnar í samráði við notendur þjónustunnar og fagaðila sem hana veita."
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Erlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira