Fjórðung af erlendum skuldum þjóðarbúsins má rekja til Björgólfs 4. september 2009 18:34
Björgólfur Thor Björgólfsson ber ábyrgð á um fjórðungi af erlendum brúttóskuldum íslenska þjóðarbúsins án bankanna, um eitt þúsund milljörðum króna. Viðskiptaráðherra og aðalhagfræðingur Seðlabankans segja fjarstæðukennt að halda því fram að Ísland stefni í greiðsluþrot. Eins og við sögðum frá í gær eru erlendar skuldir þjóðarbúsins - að frádregnum skuldum bankanna, röskir 3300 milljarðar króna. Með Icesave láninu er hún rífir 4000 milljarðar. Seðlabankinn er með 6% erlendra skulda, hið opinbera tæpan þriðjung, fyrirtækin um fjórðung og lán milli tengdra fyrirtækja er röskur þriðjungur. Hins vegar er mikil óvissa í þessum tölum. Til dæmis um það bendir aðalhagfræðingur Seðlabankans á: „Ákveðin viðskipti þar sem að móðurfélag hefur lánað dótturfélagi sínu þúsund milljarða í gegnum flókið net innlendra og erlendra eignarhaldsfélaga. Þessi skuld hefur ekkert með þjóðarbúið að gera," Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. Eftir því sem fréttastofa kemst næst er þetta Actavis, lyfjafyrirtæki Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem skuldar um eitt þúsund milljarða króna. Björgólfur er ráðandi eigandi í Novator fyrirtækjasamsteypunni, og það voru Novator félögin sem tóku lán, meðal annars hjá Deutsche bank og Landsbankanum í London, þegar Björgólfur keypti Actavis árið 2007. Það voru stærstu fyrirtækjakaup Íslandssögunnar. Þá má minna á að Björgólfur og faðir hans voru aðaleigendur Landsbankans, þaðan sem Icesave-skuldin er sprottin og því má segja að þeir feðgar beri óbeina ábyrgð á vel yfir 40% af erlendum skuldum þjóðarbúsins - án bankanna. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn mat það svo eftir bankahrun að Ísland þyldi ekki að skulda meira í erlendri mynt en 240% af landsframleiðslu. Með Icesave láninu erum við langt yfir þolmörkin. Fyrrverandi starfsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í aldarfjórðung sagði í gær að Ísland stefndi í greiðsluþrot. „Þessi tala sem þú nefnir er ekki galdratala sem skilur á milli feigs og ófeigs eins og margir telja," segir Þórarinn. Tölurnar ýkja stöðuna, segir Þórarinn og bendir á að þær telji meðal annars skuldir sem verði afskrifaðar hjá gjaldþrota eignarhaldsfélögum. Hann og viðskiptaráðherra eru sannfærðir um að við stöndum undir skuldunum. En er það fjarstæðukennt að halda því fram að við stefnum í greiðsluþrot: „Já, ég tel það," segir Þórarinn. „Það er ekkert sem bendir til greiðsluþrots," segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fleiri fréttir Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Sjá meira