Segja Helguvík geta stytt kreppuna 6. mars 2009 18:45
Ráðamenn Norðuráls eru staðráðnir í að koma smíði álvers í Helguvík á fulla ferð á ný og segja stórlækkun stálverðs og byggingarkostnaðar bjóða upp á kjöraðstæður. Forstjóri Hitaveitu Suðurnesja segir verkefnið geta stytt kreppuna verulega.Smíði kerskálanna hófst síðastliðið haust en eftir að heimskreppan skall á var dregið úr framkvæmdahraða og starfa nú um eitthundrað manns við verkefnið. Sextíu prósenta verðlækkun á áli hefur ekki dregið kjarkinn úr eigendum Norðuráls.Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir þá staðreynd að framkvæmdir séu í gangi vera besta vitnisburðinn um að menn hafi fullan hug á að halda þessu verkefni áfram. Vonir séu um að álverð hækki á næstunni þannig að menn séu að horfa fram í tímann.Gengislækkun krónunnar hefur lækkað innlendan kostnað og heimskreppan hefur gert erlend aðföng til smíðinnar ódýrari. Þannig hefur stálverð lækkað verulega og verkefnaskortur eykur líkur á hagstæðari tilboðum frá verktökum."Verkefnið ætti því að vera ódýrara við þessar aðstæður sem núna eru, ef mönnum tekst að fjármagna það," segir Ragnar.En þar stendur hnífurinn í kúnni. Norðurál bíður þess nú að Alþingi staðfesti fjárfestingarsamning vegna Helguvíkur. Ragnar segir hann hafa gríðarlega þýðingu við þær aðstæður sem nú séu uppi í heiminum. Álit Íslands hafi beðið verulegan hnekki í alþjóðafjármálaheiminum. Fjárfestingarsamningurinn sé einn af lykilþáttunum í því að tryggja fjármagn frá erlendum bönkum við þessar aðstæður.HS Orka, áður Hitaveita Suðurnesja, vonast til að fá lán frá sömu bönkum vegna tengdra virkjana. Júlíus Jónsson forstjóri segir allt hanga á staðfestingu Alþingis og borin von sé að Norðurál fái fyrirgreiðslu frá erlendu bönkunum án hennar.Stefnt er að því að fyrstu álhleifarnir komi úr kerskálunum eftir tvö og hálft ár. Það þýðir að framkvæmdir, meðal annars við virkjanir, þurfa að vera komnar á fulla ferð í haust.Júlíus segir að fyrir efnahag landsmanna geti Helguvíkurverkefnið orðið vendipunktur. Það ætti að geta stytt kreppuna talsvert og flýtt fyrir því að við komumst virkilega af stað upp á við aftur.
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fleiri fréttir „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Sjá meira