Fagnaði með stjörnum Barca 29. maí 2009 08:00 Frá fundi Auðuns og Lionels Messi, leikmanns Barcelona, í fyrra. Auðunn fagnaði með Messi og félögum eftir sigurinn í Meistaradeildinni. „
Þetta var alveg meiriháttar, ekkert smá flott,“ segir sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal um stemninguna í Róm þegar Barcelona vann lið hans, Manchester United, í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. „Þetta var algjör draumur fyrir utan úrslitin en það er gaman að hann vann,“ segir hann um vin sinn Eið Smára Guðjohnsen, leikmann Barcelona. Auðunn er að vonum ósáttur við frammistöðu sinna manna, enda léku þeir langt undir getu. „Þeir voru ekkert smá lélegir. Þeir áttu aldrei möguleika nema fyrstu tíu mínúturnar. Þetta var svekkjandi en strax skárra en ef þeir hefðu tapað fyrir Chelsea eða einhverju öðru liði. Þetta slapp,“ segir hann. Auðunn segist hafa kastað kveðju á Eið Smára eftir leikinn en annars haft við hann lítil samskipti. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins þróuðust atvik mála aftur á móti þannig að Auðunn steig upp í rútu Barcelona-liðsins eftir leikinn þar sem hann fagnaði sigrinum vel og innilega ásamt Eiði og hinum leikmönnum liðsins. Héldu fagnaðarlætin síðan áfram langt fram eftir kvöldi. Auðunn vildi ekki staðfesta þetta, enda harður United-maður, og ekki fylgdi heldur sögunni hvort hann hefði verið í United-treyju innanundir í öllum fagnaðarlátunum. Áður hafði hann lýst því yfir í viðtali við Fréttablaðið að leikurinn væri nokkurs konar „win-win“ fyrir sig því að ef United tapaði myndi vinur hans Eiður fá medalíu.- fb
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira