Samkomutjaldið féll að lögreglu ásjáandi 19. desember 2009 04:30 Þóf í portinu Einar Sturla Möinichen, eigandi Hressingarskálans, og Magnús Sædal byggingarfulltrúi rökræða tjaldmálið undir vökulu augu laganna varðar.Fréttablaðið/GVA „
Hver vill bera ábyrgð á óhappi og manntjóni? Það getur hæglega orðið hér eins og erlendis,“ segir Magnús Sædal byggingarfulltrúi, sem í gær lét fella stórt samkomutjald í garðinum við Hressingarskálann í Austurstræti. Magnús hafði boðað komu sína í Hressingarskálann klukkan tíu og mætti þá. Daginn áður höfðu eigendur staðarins vísað frá verktaka sem sendur var til að fella tjaldið. Tjaldið var sett upp í október og segjast eigendurnir hafa hugsað það sem aukasal fyrir ýmsar sjálfstæðar uppákomur. Slökkvilið sagði hættu kunna af skapast í tjaldinu og byggingarfulltrúinn benti á að nauðsynleg leyfi skorti en eigendurnir neituðu að verða við tilmælum um að fella tjaldið. Vinnuflokki byggingarfulltrúa var synjað um aðgang að veitingastaðnum til að komast í garðinn. „Við hleyptum reyndar byggingarfulltrúanum sjálfum inn en svo vildi hann ekki fara út aftur fyrr en lögreglan kom og talaði hann til,“ segir Einar Sturla Möinichen, annar tveggja eigenda Hressingarskálans. Ákvörðun byggingarfulltrúa um niðurrif tjaldsins hafði verið kærð til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála. Samkvæmt bráðabirgðaúrskurði, sem barst frá nefndinni eftir að byggingarfulltrúi mætti á staðinn, voru aðgerðir hans ekki stöðvaðar þar sem mögulegir almannahagsmunir vægju þyngra en hagsmunir eigendanna. Einar segir að þá hafi eigendurnir ekki sett sig upp á móti því að tjaldið yrði fellt. Þeir hafi þó ekki viljað auðvelda verkið með því að hleypa vinnuflokkunum í gegnum staðinn. „Þeir tóku þá stiga og klifruðu yfir hlið í portinu,“ segir hann. Tjaldið umdeilda var síðan tekið niður. Lögreglumennirnir fylgdust með að sögn Einars Sturlu enda hleypti hann þeim í gegnum veitingastaðinn. Magnús Sædal segir ekki hafa verið sótt um leyfi fyrir tjaldinu og að fyrir því sé ekki nauðsynlegur byggingarreitur. „Þá þyrfti að kynna þetta fyrir nágrönnum og ég er ansi hræddur um að það yrði þungur róður enda veldur þetta hávaða í umhverfinu,“ segir byggingarfulltrúinn. Einar Sturla segir málinu ekki lokið. „Við erum að teikna upp tjaldið og ætlum að sækja um bráðabirgðaleyfi.“ gar@frettabladid.is Útilokaðir
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira