Tætir í sig rök ríkisstjórnarinnar 19. desember 2009 18:48
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að Bretar hafi beitt sér gegn Íslandi hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og þar með misbeitt stöðu sinni innan AGS. Þetta kemur fram í minnisblaði til utanríkismálanefndar Alþingis. Formaður Framsóknarflokksins segir að í minnisblaðinu tæti hún í sig grunnstoðirnar í málflutningi ríkisstjórnarinnar í Icesave málinu. Ingibjörg Sólrún dregur upp mynd af því sem gerðist bak við tjöldin í harðri milliríkjadeilu Íslendinga við Breta og Hollendinga í minnisblaði til utanríkismálanefndar Alþingis. Hún segir að í stað þess að efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem undirrituð var í október í fyrra, fengi eðlilega afgreiðslu hafi ferlið verið teppt án viðvarana og hreinskiptni. Í minnisblaðinu víkur Ingibjörg Sólrún að harkalegum aðgerðum Breta í fyrrahaust sem hún segir hafa leitt til ómælds tjóns. Allan nóvember hafi Ísland háð eina hörðustu milliríkjadeilu í sögu sinni. Í minnisblaðinu segir að þáverandi ríkisstjórn hafi haft áreiðanlegar heimildir fyrir því á þeim tíma að Bretar beittu sér gegn Íslandi hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Það hafi síðan reynst raunin. Bretar hafi til dæmis gert kröfu um að inn í viljayfirlýsingu íslenskra stjórnvalda til framkvæmdastjórnar AGS yrði bætt tilvísun um Icesave samningaviðræðurnar. Með því töldu þáverandi stjórnvöld að Bretar væru að misbeita stöðu sinni mjög innan AGS. Þá segir Ingibjörg í minnisblaðinu að Brussel viðmiðin, sem samþykkt voru í nóvember í fyrra, hafi verið kjarni Icesave málsins fyrir Íslendinga því þau hafi fært inn í forsendur samningaviðræðna tillit til erfiðra og fordæmalausra aðstæðna okkar. Hún segir að viðmiðin hafi markað nýtt upphaf í Icesave deilunni og segir ennfremur að þó að þau feli í sér pólitíska skuldbindingu þá skuldbindi þau Ísland ekki með neinum hætti ef ný stjórnvöld vilji hafa þau að engu. „Hún í rauninni tætir í bara í sig grunnstoðirnar í málflutningi ríkisstjórnarinnar í þessu máli," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Sigmundur veltir því upp hvort ekki sé hægt að skipa nefnd þingmanna úr öllum flokkum undir forystu Ingibjargar.
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira