Fyrri rannsókn FME bundin við haustið 19. desember 2009 06:00 Gunnar Þ. Andersen
Rannsókn Fjármálaeftirlitsins (FME) á meintum innherjasvikum Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, einskorðaðist í upphafi við atburði í september í fyrra. Við endurupptöku málsins síðasta sumar, í kjölfar ábendinga, beindist rannsóknin að atburðum sem gerst höfðu fyrir september. Þetta skýrir hvers vegna fundargerðir samráðshóps Seðlabankans um fjármálastöðugleika frá því sumarið 2008, sem síðan hafa reynst innihalda mikilvægar upplýsingar, voru ekki skoðaðar áður en fyrri rannsókn var hætt. Þetta segir Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins. Fréttablaðið greindi frá því í gær að fundargerðirnar hefðu ekki verið teknar til athugunar í fyrri rannsókn þrátt fyrir að Jónas Fr. Jónsson, sem var forstjóri FME, hefði setið í samráðshópnum. Ábending sem barst í sumar um efnisatriði í fundargerðunum varð til þess að FME hóf rannsókn málsins á ný. Gunnar segir að rannsóknin hafi þá verið víkkuð út og ákveðið verið að taka lengra tímabil til skoðunar, sem síðan hafi leitt til þess að sérstakur saksóknari rannsaki nú málið. Gunnar vildi í samtali við Fréttablaðið í gær ekki leggja mat á það hvort Jónas hefði átt að láta víkka út rannsóknina þegar í upphafi í ljósi þeirra upplýsinga sem hann bjó yfir eftir setuna í samráðshópnum. Gunnar segist ekki vilja fara í „díalóg við fyrrverandi forstjóra um málið fram og til baka". Þó væri hefðbundið að frumrannsókn á meintum innherjasvikum tæki fyrst og fremst til daganna í kringum meint brot. Í yfirlýsingu sem Jónas sendi frá sér vegna fréttar blaðsins í gær sagði hann að þegar hann hefði látið af störfum forstjóra FME hefði rannsóknin á máli Baldurs ekki verið komin á það stig að vera á borði forstjóra. Fundargerðir samráðshópsins hefðu verið í skjalaskrá FME og hann hefði bent rannsakendum á að kynna sér efni þeirra. Fullyrðing Jónasar um fundargerðirnar stangast á við það sem kom fram í máli Björns Þorvaldssonar saksóknara við málflutning í héraðsdómi í vikunni. Þar sagði Björn, að því er segir í Viðskiptablaðinu, að FME hefði þangað til nú í sumar ekki haft aðgang að fundargerðunum. Ekki hafa fengist skýringar á þessu misræmi. Fréttablaðið sendi Jónasi fyrirspurnir um málið í gær en fékk ekki svar.stigur@frettabladid.is
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent Hleypti líklega óvart úr Innlent Fleiri fréttir Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Sjá meira