Tólf manns á Íslandsskrifstofu ESB 19. desember 2009 05:30 Höfuðstöðvar ESB Leit stendur yfir að húsnæði fyrir sendinefnd sambandsins á Íslandi.
Ríkisstjórnin staðfesti í gær samning um stofnun sendinefndar Evrópusambandsins á Íslandi. Í samningnum er fjallað um lögformlega stöðu sendinefndarinnar og margvíslegar heimildir hennar. Þá er kveðið á um að hún skuli njóta þeirra réttinda, forréttinda og friðhelgi, og vera bundin af þeim skyldum, sem Vínarsamningurinn um stjórnmálasamband kveður á um. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er stefnt að því að tólf starfsmenn verði á skrifstofu sendinefndar ESB á Íslandi. Að líkindum verða sjö þeirra fastráðnir starfsmenn sambandsins í Brussel en fimm verða ráðnir á Íslandi. Leitað er að húsnæði fyrir nefndina, sem helst vill vera í miðborg Reykjavíkur, nærri helstu stjórnsýslubyggingum. Nefndin tekur til starfa á Íslandi í byrjun nýs árs. Yfirmaður hennar og sendiherra Evrópusambandsins verður Timo Summa, sem verið hefur starfsmaður á stækkunarskrifstofu þess. Er hann Finni eins og yfirmaður hans hjá ESB, Olli Rehn. Evrópusambandið starfrækir sendiráð eða -nefndir í um 130 ríkjum heimsins. Ísland hefur til þessa heyrt undir sendiráð þess í Ósló en stofnað er til starfseminnar hér nú í ljósi aðildarumsóknar Íslands. - bþs
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Fleiri fréttir Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Sjá meira