Innlent

Styttir bið eftir öðru barni

Bið kjörforeldra eftir því að ættleiða öðru sinni styttist um sex mánuði með nýrri reglugerð dómsmálaráðherra.

Kjörforeldrar geta nú lagt fram beiðni um forsamþykki frá íslenskum stjórnvöldum sex mánuðum eftir heimkomu ættleidds barns, en þurftu áður að bíða í tólf mánuði.

Þá er ekki lengur gerð krafa um að hafa lokið undirbúningsnámskeiði fyrir kjörforeldra áður en forsamþykki er veitt, hafi slíkt námskeið ekki verið haldið frá því sótt var um. Þá dugir að fara á fyrsta námskeið sem haldið er eftir að forsamþykki er veitt.- bj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×