Liverpool tapaði fyrir botnliðinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. desember 2009 14:41 Leikmenn Portsmouth fagna fyrra marki sínu í dag. Nordic Photos / Getty Images
Portsmouth vann í dag 2-0 sigur á Liverpool í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Þetta var sjöunda tap Liverpool í deildinni í vetur og möguleiki á því að liðið verði fallið niður í áttunda sæti deildarinnar þegar leikjum helgarinnar verður lokið. Portsmouth náði þrátt fyrir sigurinn ekki að koma sér upp úr botnsæti deildarinnar en liðið er nú með fjórtán stig, rétt eins og West Ham, og aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti. Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn með Portsmouth og stóð sig vel, rétt eins liðsfélagar hans. Liverpool byrjaði betur og komst Fernando Torres í ágætt færi snemma í leiknum en skaut yfir. En heimamenn unnu sig betur inn í leikinn eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn og komust svo yfir á 33. mínútu. Kevin-Prince Boateng átti skot að marki sem Pepe Reina varði. Glen Johnson, fyrrum leikmaður Portsmouth, reyndi að koma boltanum frá markinu en skallaði hann beint fyrir fætur Nadir Belhadj sem þrumaði knettinum í netið úr þröngu færi. Daniel Agger fékk svo færi til að jafna metin fyrir Liverpool en hann skallaði boltann naumlega yfir eftir fyrirgjöf Steven Gerrard úr aukaspyrnu. Liverpool varð svo fyrir áfalli undir lok fyrri hálfleiksins er Javier Mascherano fékk að líta rauða spjaldið eftir að hafa tæklað Tal Ben Haim nokkuð harkalega. Mascherano fær fjögurra leikja bann fyrir spjaldið þar sem þetta var annað rauða spjaldið sem hann fær í vetur. Bæði lið fengu nokkur hálffæri í síðari hálfleik en Portsmouth gerði út um leikinn á 82. mínútu þegar að Frederic Piquionne kom heimamönnum 2-0 yfir. Boateng kom boltanum inn í teig þar sem Piquionne var mættur. Hann tók boltann með einni snertingu og skoraði svo með föstu skoti, aftur úr mjög þröngu færi. Þar með var ljóst að sigur Portsmouth var tryggður og aukast því vandræði Rafa Benitez og hans manna í Liverpool enn.
Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Sjá meira