Skerðingar á móti hærri framfærslu 10. september 2009 06:00 Breytingar Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra kynntu breytingar á fyrirkomulagi námslána í menntamálaráðuneytinu í gær.Fréttablaðið/Stefán
Réttur námsmanna til atvinnuleysisbóta í sumarfríi verður afnuminn, skerðing á námslánum vegna tekna aukin og tekið verður harðar á námsmönnum sem þiggja atvinnuleysisbætur til að skera niður kostnað á móti fimmtungshækkun grunnframfærslu námslána. Stjórnvöld tilkynntu í gær að grunnframfærsla námslána Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) skyldi hækka úr 100 þúsund krónum á mánuði í 120 þúsund krónur á mánuði, eins og sagt var frá í Fréttablaðinu í gær. Framfærsla námsmanna sem búa í foreldrahúsum mun þó standa í stað, og verður 50 prósent af grunnframfærslu. Kostnaðarauki LÍN við þessa breytingu er um einn milljarður króna á ári, segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Hún segir að með því að hækka tekjuskerðingarhlutfall úr 10 prósentum í 35 prósent, með 750 þúsunda króna frítekjumarki, megi lækka kostnað LÍN um 300 milljónir króna á móti þessum kostnaði. Auk þess er reiknað með að kostnaður félags- og tryggingamálaráðuneytisins lækki um 700 til 900 milljónir króna, segir Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra. Draga á úr kostnaði ráðuneytisins með því að afnema rétt námsmanna til atvinnuleysisbóta yfir sumartímann. Þá verður atvinnuleysisskrá samkeyrð við nemendaskrá háskólanna til að nemendur í lánshæfu námi þiggi ekki bætur. Árni Páll segir mikilvægt á krepputímum að éta ekki útsæðið, og standa vörð um möguleika fólks til að mennta sig. Hækkun á námslánum muni vonandi leiða til þess að fleiri sæki í nám í stað þess að þiggja atvinnuleysisbætur. Í því skyni verði til að mynda frítekjumark vegna skerðingar á námslánum fimmfalt, 3.750 þúsund krónur, hjá þeim sem hafi verið á vinnumarkaði en vilji hefja nám á ný. Breytingar á námslánum koma til framkvæmda strax, en þeir sem hafa sótt um lán fyrir haustönn þurfa að sækja aftur um ef þeir vilja njóta góðs af. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Sjá meira