Birgir krefur Jóhönnu um upplýsingar varðandi AGS 16. febrúar 2009 10:25 Birgir Ármannsson.
Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í Viðskiptanefnd hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra bréf þar sem hann óskar eftir upplýsingum vegna samskipta ráðuneytisins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Í bréfinu segir Birgir að treglega hafi gengið að fá upplýsingar um samskipti íslenskra ráðamanna við sjóðinn í tengslum við nýsmíðað frumvarp um Seðlabanka Íslands „og að einhverju leyti virðast fullyrðingar í málinu stangast á. Tel ég því óhjákvæmilegt að snúa mér beint til ráðuneytisins og óska eftir þessum upplýsingum á grundvelli upplýsingalaga," segir Birgir. Birgir óskar eftir upplýsingum varðandi eftirfarandi: Yfirlit yfir öll samskipti forsætisráðuneytisins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem tengjast Seðlabankafrumvarpinu frá og með 4. febrúar til dagsins í dag. Átt er við öll símtöl, fundi og skrifleg samskipti sem varða þetta mál. Afrit af öllum skráningum hjá forsætisráðuneytinu sem varða samskiptin við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn á þessu tímabili og tengjast þessu máli. Þar er átt við dagbókarfærslur, skráningu í málaskrá og fundargerðir, eftir því sem við á. Afrit af öllum bréfum, tölvubréfum, skeytum eða öðrum skriflegum gögnum, formlegum eða óformlegum, sem gengið hafa á milli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og forsætisráðuneytisins frá og með 4. febrúar til dagsins í dag og varða Seðlabankafrumvarpið. Að mati Birgis er það ótvíræð skylda forsætisráðuneytisins að afhenda þessi gögn og segist hann ekki telja að undanþágur frá upplýsingaskyldu stjórnvalda eigi við í þessu sambandi. „Því verður ekki með neinu móti haldið fram, að mikilvægir almannahagsmunir krefjist þess að leynd sé haldið yfir „tæknilegum athugasemdum" við lagafrumvarp sem komið er til meðferðar á Alþingi," segir Birgir. „Þvert á móti er rík ástæða til að ætla, að almannahagsmunir krefjist þess að slíkar upplýsingar séu opinberar. Einnig er minnt á að í athugasemdum við 3. gr. frumvarps til upplýsingalaga er skýrt tekið fram að stjórnvald geti ekki heitið þeim trúnaði sem gefur upplýsingar. Slíkt verði ekki gert nema að ótvírætt sé að upplýsingarnar falli undir eitthvert af framangreindum undanþáguákvæðum," segir Birgir að lokum um leið og hann segist vænta skjótrar meðferðar á málinu í ráðuneytinu.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira