Biblían logaði í messu 21. nóvember 2009 05:45 Töfrandi prestur Pétur Þorsteinsson er prestur Óháða safnaðarins, hann er auk þess einn stofnenda Hins íslenska töframannagildis. fréttablaðið/heiða
Pétur Þorsteinsson er einn stofnenda Hins íslenska töframannagildis auk þess sem hann er prestur Óháða safnaðarins. Pétur hefur haldið svokallaðar galdramessur tvisvar á ári hverju þar sem hann tvinnar kristilegum boðskap saman við töfra. „Það eru sérstakar fjölskyldumessur hjá okkur einu sinni á misseri og þá hef ég tvinnað töfra inn í predikun mína til þess að ná athylgi bæði barna og fullorðinna. Þessar messur eru mjög vel sóttar og kirkjukaffið sem haldið er á eftir trekkir einnig mikið að,“ segir Pétur, en hann hefur meðal annars kveikt í Biblíunni í einni slíkri messu. „Það kviknaði í Biblíunni vegna þess að við vorum að tala um eldfim mál. Ég gat þó slökkt í henni áður en nokkrar skemmdir urðu á bókinni góðu,“ segir Pétur glaðlega. Pétur hefur starfað sem prestur í fimmtán ár og segist hafa nýtt töfrana til að gera fjölskyldumessurnar sjónrænni fyrir kirkjugesti. „Ég hef tvisvar farið á töfranámskeið erlendis og svo hef ég einnig lært ýmislegt frá félögum mínum í töframannagildinu. Það er ýmislegt í þessu sem mér finnst vel hægt að tengja kristindómi og gerir messurnar sjónrænni fyrir vikið.“ Pétur segir mikinn tíma fara í að æfingar og tekur fram að á þeim fimmtán árum sem hann hefur starfað sem prestur hafi hann aldrei sýnt sama töfrabragðið tvisvar. Aðspurður segist hann þó ekki grípa til töfra í venjulegum sunnudagsmessum, heldur séu þeir aðeins fyrir fjölskyldumessurnar. „Börnin taka svo mikinn þátt í þessu og það er gaman að geta náð til þeirra á þennan hátt,“ segir Pétur að lokum. Næsta galdramessa fer fram í mars á næsta ári í Háteigskirkju. -sm
Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira