Utanríkisráðuneytið: Allt sett á fullt ef Obama kemur Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. desember 2009 11:49
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sækir Ísland heim ef ákveðið verður að í Reykjavík verði skrifað undir nýtt samkomulag um fækkun kjarnavopna. Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, segir í samtali við fréttastofu að engar ákvarðanir hafi verið teknar varðandi fundinn. Ráðuneytið hafi þó verið í sambandi við sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi vegna málsins. Íslendingar muni að sjálfsögðu setja allt á fullt við undirbúning verði ákveðið að halda fundinn hér. Það var fréttavefur The New York Times sem sagði frá því á miðvikudaginn að það kæmi til greina að undirrita samkomulagið í Reykjavík, en jafnframt kæmu borgirnar Genf í Sviss og Helsinki, höfuðborg Finnlands, til greina. Líklegt þykir að bæði Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, og leiðtogar Rússlands, verði viðstaddir undirritunina. New York Times segir að unnið sé hörðum höndum að gerð samkomulagsins og björtustu vonir standi til að þeirri vinnu ljúki áður en Obama haldi í Evrópureisu í næstu viku. Heimildarmaður blaðsins úr Hvíta húsinu telur þó líklegra að undirritað verði rétt fyrir áramót.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Fleiri fréttir Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Sjá meira