Flórída háskalegast gangandi vegfarendum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 10. nóvember 2009 08:22
Flórída er hættulegasta ríki Bandaríkjanna fyrir gangandi vegfarendur samkvæmt nýrri rannsókn. Það er ekkert grín að vera á ferð á tveimur jafnfljótum í Orlando, Tampa, Miami og Jacksonville í Flórída. Þessar fjórar borgir raða sér í jafnmörg efstu sætin á lista yfir 10 háskalegustu borgir Bandaríkjanna fyrir gangandi umferð. Það eru regnhlífasamtökin Transportation for America sem kanna reglulega hvar umferð og umferðartengd atriði eru hættulegust og þetta er niðurstaðan í ár. Rannsóknin tók til 52 þéttbýlissvæða í Bandaríkjunum og gengur hún út á að kanna dánartíðni í umferðinni á hverja 100.000 íbúa og hlutfall fótgangenda þar af. Á meðan hættulegast er að labba um Flórída eru öruggustu borgirnar Minneapolis, Boston, New York og Seattle. Anny Camby hjá Transportation of America segir öryggi fótgangandi vegfarenda ekki hafa batnað mikið síðustu áratugi. Hönnun margra hættulegustu borganna sé frá því skömmu eftir síðari heimsstyrjöld og skipulag þess tíma hafi einfaldlega fyrst og fremst gert ráð fyrir bílaumferð. Eftir því sem árin líði hafi svo hlutfall gangandi og hjólandi vegfarenda rokið upp án þess að borgarskipulag hafi verið sniðið að því sérstaklega. Rúmlega 9.000 gangandi vegfarendur létust í umferðarslysum í Bandaríkjunum hvort ár fyrir sig, 2007 og 2008.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Hrokinn í þessum fjármálaráðherra er með þvílíkum ólíkindum“ Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Sjá meira