Litháarnir störfuðu hjá Íslendingunum 22. október 2009 06:00 Stúlkan er í umsjá embættis Lögreglustjórans á Suðurnesjum sem fer með rannsókn málsins.
Þrír íslenskir karlmenn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í gær, á grundvelli aðildar að meintu mansalsmáli á Suðurnesjum, þjófnaðarbrota og tryggingasvika. Þá var gæsluvarðhald framlengt yfir fimm litháískum karlmönnum sem setið hafa inni vegna gruns um aðild að sama máli. Hópurinn skal sitja í gæsluvarðhaldi til klukkan fjögur 28. október. Rannsókn lögreglu er afar viðamikil, enda rökstuddur grunur um skipulagða glæpastarfsemi hópsins í brotum af ýmsu tagi, þar á meðal ofbeldisbrotum. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum lagði í gær fram kröfu um framlengingu í viku yfir Litháunum og gæsluvarðhald sömuleiðis í viku yfir Íslendingunum og féllst héraðsdómur á hana. Íslendingarnir sem um ræðir voru handteknir í fyrradag ásamt tveimur konum sem hefur verið sleppt eftir yfirheyrslur hjá lögreglu. Mennirnir eru, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins, allir af höfuðborgarsvæðinu. Farið var í sex húsleitir í tengslum við handtökur Íslendinganna. Leitað var á heimilum, í fyrirtækjum og annars konar húsnæði. Aðgerðirnar voru viðamiklar og við þær naut Lögreglan á Suðurnesjum aðstoðar lögreglumanna frá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, Lögreglustjóranum í Stykkishólmi og Ríkislögreglustjóranum. Í þeim voru ýmis gögn haldlögð til frekari rannsóknar hjá lögreglu. Tengsl eru milli mannanna níu sem sitja inni. Litháarnir vinna hjá verktakafyrirtæki sem tveir af Íslendingunum eiga. Lögregla útilokar ekki að um frekari handtökur og húsleitir verði að ræða. Málið teygir sig einnig til embættis sýslumannsins á Snæfellsnesi. Nokkrir úr hópnum sem nú sitja inni eru grunaðir um afbrot í umdæmi hans og er sá angi til rannsóknar hjá lögreglunni. Upphaf málsins má rekja til þess að nítján ára litháísk stúlka var stöðvuð við komuna til landsins fyrr í mánuðinum eftir að hún hafði látið ófriðlega í flugvél á leið hingað til lands. Stúlkan var með fölsuð skilríki og grunur leikur á að til hafi staðið að selja hana í vændi hér á landi. Ekkert hefur spurst til litháísks karlmanns sem lýst var eftir í kjölfar þess að stúlkan kom hingað til lands. Talið er að hann hafi farið af landi brott. Stúlkan er í umsjá embættis Lögreglustjórans á Suðurnesjum sem fer með rannsókn málsins. Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra hefur unnið að athugun á bakgrunni hennar í heimalandinu.
Mest lesið Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Innlent Fleiri fréttir Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sektaður um hundruð þúsunda fyrir að sparka í hund Stýra fjármálum og mannauðsmálum Þjóðleikhússins Sló mann í höfuðið með glerflösku á ísfirskum skemmtistað Ekið á konu á Langholtsvegi Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Undrandi á ráðningu ráðgjafa „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Ráðist á pilt á heimleið Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Sjá meira