Iðnaðarráðherra undirritaði viljayfirlýsingu fyrir norðan 22. október 2009 14:33
Í dag undirritaði iðnaðarráðherra viljayfirlýsingu við Norðurþing, Skútustaðahrepp og Þingeyjarsveit um samstarf á sviði orkurannsókna, orkunýtingar og atvinnuuppbyggingar í Þingeyjarsýslum. Undirritunin fór fram á Sjóminjasafninu á Húsavík. Í tilkynningu segir að aðilar eru sammála um mikilvægi þess að nýta jarðvarma í Þingeyjarsýslum til stórfelldrar atvinnuuppbyggingar á svæðinu. Markmið þeirrar vinnu sem hefst í kjölfar undirritunarinnar er að skapa þær aðstæður að þann 1. október 2010 verði allri nauðsynlegri forvinnu lokið þannig að unnt verði að ganga til samninga við stóran orkukaupanda / orkukaupendur um uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Þingeyjarsýslum. Aðilar eru sammála um mikilvægi þess að velja einn eða fleiri trausta, ábyrga og fjárhagslega sterka aðila til samstarfs um atvinnuuppbyggingu sem byggir á hagnýtingu orkunnar frá háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum. Lögð verði áhersla á að orkan sem er að finna á háhitasvæðum í Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi verði nýtt til að skapa nokkur hundruð bein varanleg störf í Þingeyjarsýslum. Skipuð verður verkefnisstjórn sem mun bera ábyrgð á leit að mögulegum samstarfsaðilum um atvinnuuppbyggingu. Í verkefnisstjórninni munu eiga sæti einn fulltrúi frá hverju sveitarfélagi þ.e. Norðurþingi, Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit, einn frá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga, einn frá iðnaðarráðuneytinu / Fjárfestingarstofu, einn frá Þeistareykjum ehf. og einn frá Landsvirkjun. Verkefnisstjórnin skal ljúka fyrstu athugun á mögulegum samstarfsaðilum fyrir 1. apríl 2010 og nýta svo tímann til 1. október 2010 til nánari viðræðna og samningagerðar við þá sem til greina koma. Aðilar munu beita sér fyrir að stofnað verði nýtt félag sem hafi það meginmarkmið að afla fjár til að ljúka áðurnefndum orkurannsóknum. Hluthafar félagsins verði lífeyrissjóðir, aðrir fagfjárfestar, Landsvirkjun, iðnfyrirtæki og mögulega sveitarfélögin á svæðinu.
Mest lesið Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Erlent Fleiri fréttir Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Sjá meira