Erlent

Islamistar veittust að hollenskum þingmanni

Óli Tynes skrifar
Wilders varð að flytja blaðamannafund sinn í hús.
Wilders varð að flytja blaðamannafund sinn í hús. Mynd/Getty Images

Aðsúgur var gerður að hollenska þingmanninum Geert Wilders þegar hann kom að þinghúsinu í Lundúnum í dag.

Hann varð að leita hælis í nærliggjandi húsi. Wilders berst af mikilli hörku gegn islamistum í Evrópu sem hann segir hættulega friði og tjáningarfrelsi.

Þetta með tjáningafrelsið var allavega rétt í dag. Wilders hafði hugsað sér að ræða við blaðamenn á grasflöt við þinghúsið. L

ögreglan sagði honum að það væri mjög óráðlegt vegna öryggis hans. Ekki myndi heldur heyrast neitt í sér þar sem múslimar sem mættu til að mótmæla höfðu með sér gjallarhorn í hver þeir öskruðu hótanir og skammir.

Wilders og fréttamennirnir fóru því inn í nálægt hús þar sem eru skrifstofur breska þingsins.

Bresk stjórnvöld synjuðu Hollendingnum upphaflega um leyfi til að koma til landsins.

Wilders lét reyna á það fyrir dómstólum sem hnekktu ákvörðun ríkisstjórnarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×