Tuttugu ár síðan múrinn féll Atli Steinn Guðmundsson skrifar 9. nóvember 2009 07:13
Í dag eru 20 ár liðin síðan landamærahlið Berlínarmúrsins voru opnuð og þetta 43 kílómetra langa tákna kalda stríðsins varð að sögulegum minnisvarða. Það var sunnudaginn 13. ágúst 1961 sem gaddavírsgirðing var lögð gegnum Berlín og borginni skipt í austur og vestur að undirlagi þeirra Nikita Krushchev, aðalritara sovéska kommúnistaflokksins, og Walters Ulbricht, leiðtoga kommúnista í Austur-Þýskalandi. Sama dag var hafist handa við að reisa múrinn illræmda sem stóð fram á haustdaga 1989, steingrátt tákn um kalda stríðið og gjána milli austurs og vesturs. Í dag eru 20 ár liðin frá deginum sem Þjóðverjar kalla Tag des Mauerfalles, daginn sem múrinn féll. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar landamærahliðin voru opnuð og Austur-Þjóðverjar ruddust yfir til vesturs án skilríkja og án þess að nokkur væri skotinn en í október 1973 gáfu austurþýsk yfirvöld landamæravörðum sínum fyrirskipun um að skjóta alla þá sem reyndu að lauma sér í heimildarleysi frá austri til vesturs og hika ekki þótt konur og börn væru notuð sem skildir en það væri þekkt bragð þeirra sem reyndu að flýja. Þrátt fyrir þetta tókst um 5.000 manns að flýja yfir til Vestur-Berlínar þann tíma sem múrinn stóð en deilt er um fjölda þeirra sem skotnir voru til bana við að reyna að komast yfir. Forstöðumaður Checkpoint Charlie-safnsins, en Charlie var ein þriggja landamærastöðva þar sem fólki var hleypt í gegn að uppfylltum skilyrðum, telur að fjöldi þeirra sé þó vel yfir 200.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Hrokinn í þessum fjármálaráðherra er með þvílíkum ólíkindum“ Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira