Erlent

Byggingu hálfkláraðs hótels haldið áfram

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Ryugyong-hótelið er fyrir miðri mynd.
Ryugyong-hótelið er fyrir miðri mynd.

Norður-Kóreumenn sjá nú loksins fram á að lokið verði við að byggja Ryugyong-hótelið en byggingin hefur gnæft hálfkláruð yfir Pyongyang, höfuðborg landsins, í rúma tvo áratugi. Ótal vandamál komu upp við byggingu hótelsins og á sínum tíma varð fjárskortur til þess að framkvæmdum var hætt. Hótelið hefur því staðið hálfklárað síðan á níunda áratug síðustu aldar, norður-kóreskum yfirvöldum til skammar. Nú stendur loks til að ljúka verkinu og er stefnan tekin á að opna hótelið formlega í apríl 2012.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×