Dorrit stefnt fyrir dómstól í London af nágranna sínum 3. júlí 2009 10:26
Forsetafrúnni Dorrit Moussaieff var stefnt fyrir dómstól í London af næsta nágranna sínum í borginni innanhúshönnuðinum Tiggy Butler. Tiggy sakaði Dorrit um hótanir, árásargjarna hegðun og húsbrot. Samkvæmt frétt um málið í Daily Mail eiga þær tvær heimili í húsi sem snýr út að torgi í auðmannahverfinu Knightsbridge. Málið á uppruna sinn í apríl s.l. þegar vatn fór að leka úr íbúð Tiggy sem er fyrir ofan íbúð Dorrit . Daily Mail segir að þá hafi Dorrit farið ólögleg inn í íbúð Tiggi ásamt tveimur mönnum. Tiggy segir að Dorrit hafi neitað að yfirgefa íbúðina. Í ákæru Tiggy á hendur Dorrit segir að forsetafrúin hafi ítrekað neitað að yfirgefa íbúðina þrátt fyrir að vera beðin um það og Dorrit hafi ausið svívirðingum yfir hana og húshjálp hennar með grófri hegðun sinni. Dorrit hafi ekki farið úr íbúðinni fyrr en lögreglan kom á staðinn. Tiggy krafðist þess fyrir dómi að Dorrit yrði bannað að áreita hana, verktaka sína og starfsfólk sitt. Málið hefur verið í gangi síðan í vor en í millitíðinni hefur Tiggy dregið til baka megnið af ásökunum sínum og hefur verið gert að greiða Dorrit 80% af þeim skaða sem vatnsleikinn olli. Dorrit segir í samtali við Daily Mail að ásakanir Tiggy hafi ekki átt neina stoð í raunveruleikanum. „Hún hélt því fram að ég hefði stokkið yfir tveggja metra háan vegg jafnvel þótt ég hafi verið á hækjum daginn sem það átti að hafa gerst," segir Dorrit. Dorrit segir ennfremur að flesta þá daga sem fyrrgreind atriði áttu að hafa gerst hafi hún verið úti í sveit. „Ég þekki ekki Tiggy en ég þekkti áður kærasta hennar Tony Ryan sem er heillandi maður," segir Dorrit. Daily Mail hefur ekki tekist að násambandi við Tiggy Butler.
Mest lesið Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Innlent Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Innlent Matthías leiðir Framsókn í Árborg Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Brotist inn hjá Alberti Innlent Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Innlent Fleiri fréttir Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Kvöddu Davíð hinsta sinni Enn óvissa um framtíð blóðmerahalds: „Þetta er stórt og viðkvæmt mál“ Losun virkjana fjórðungi minni með nýrri lofthreinsistöð Vegurinn á Bolafjall ekki lengur á ábyrgð utanríkisráðuneytisins Átta ár fyrir gróf brot gegn gestkomandi barni og eiginkonu Hrönn og Þórir hafna helstu ávirðingum á RIFF „Ég var skelfingu lostinn“ Aðstoða blauta og kalda gönguskíðamenn á Hofsjökli Óveðrinu slotað og ASÍ með áhyggjur af bensínverðinu Fimm fólksbílar og flutningabíll fastir á Holtavörðuheiði Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Listi Framsóknar í Kópavogi kynntur og Orri áfram oddviti Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Rændi verslun vopnaður hníf Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Sjá meira