Hámarksfjárhæð verði hækkuð 23. október 2009 03:45 Af rúmlega 150.000 eigendum séreignarsparnaðar hafa 39.000 fengið hann greiddan út á árinu, allt að eina milljón króna hver. fréttablaðið/hari
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að til greina komi að framlengja þann tíma sem fólk eigi kost á að fá séreignarsparnað sinn greiddan út og hækka þá hámarksfjárhæð sem fólk geti tekið út. Um 39.000 manns hafa nýtt sér heimild sem samþykkt var í mars á þessu ári til að taka út allt að eina milljón króna af séreignarsparnaði sínum á tólf mánaða tímabili. Heildargreiðslan nemur 21,6 milljörðum króna á árinu. Frestur til að sækja um heimildina rennur út 1. október á næsta ári. Áætlað var að heildarútgreiðsla á þeim tíma gæti numið 40 til 50 milljörðum króna. Þetta kom fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi á miðvikudag. Steinunn spurði hvort ráðherrann vildi beita sér fyrir því að framlengja heimildina og svaraði Steingrímur játandi; til greina kæmi að framlengja umsóknartímann, hækka heildarfjárhæðina eða lengja þann tíma sem dreifa mætti greiðslunum á. Rúmlega 150.000 manns eiga séreignarsparnað í lífeyrissjóðum, þannig að um fjórðungur þeirra hefur fengið endurgreitt. Steingrímur sagði að tekjuauki ríkis og sveitarfélaga vegna aukinna skatta af þessu væri um átta milljarðar króna á þessu ári. Ríkið hefði nýtt um þrjá milljarða af þeim 5,2 milljörðum sem runnu til þess í það að hækka vaxtabætur í ágúst á þessu ári. Um 16.000 af þeim sem tekið hafa út séreignarsparnað eru viðskiptavinir Nýja Kaupþings. Berghildur Erla Bernharðsdóttir upplýsingafulltrúi segir að bankinn telji ekkert því til fyrirstöðu að framlengja tímann sem sjóðfélagar geta óskað eftir fyrirframgreiðslum úr séreignasjóðum.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira