Kergja í viðræðum og óvissa um samning 17. desember 2009 06:00 úr aðalsalnum Mikill hiti var í umræðum í gær og fulltrúar G77-ríkjanna komu hver á fætur öðrum í pontu um fundarstjórn sem þeir voru ósáttir við.nordicphotos/afp
Mikil spenna var í aðalfundarsalnum í Bella Center í gær. Fulltrúar þróunarríkjanna, G77, voru gríðarlega óánægðir með hvernig haldið var á málum. Þeir komu hver á fætur öðrum í pontu um fundarstjórn og nýr fundarstjóri átti í erfiðleikum með að greiða úr flækjunni. Það tókst þó á endanum og örlítið meiri bjartsýni ríkti í lok dags en í gærmorgun. Fulltrúar Afríkuríkja höfðu fundað alla nóttina aðfaranótt miðvikudags þegar texti fór á kreik sem geymdi uppkast að lokasamningi. Textinn hleypti illu blóði í fulltrúana, sem fannst fráleitt nóg að gert fyrir þróunarríkin. Textinn bæri allt of mikinn keim af hagsmunum hinna ríkari þjóða. Fulltrúarnir létu vel í sér heyra og gerðu ljóst að slíkur samningur yrði aldrei samþykktur. Ljóst er að þróunarríkjunum er alvara með því að standa fast á sínum kröfum. Verði ekki fallist á þær telji þau sig óbundin samningum um takmörkun útblásturs gróðurhúsalofttegunda þegar Kyoto-bókunin rennur út árið 2012. Þau hyggist rétta efnahag sinn við með iðnfyrirtækjum með tilheyrandi útblæstri. Fyrst og fremst er það sendinefnd Bandaríkjanna sem stendur í vegi fyrir auknum fjárframlögum. Eftir því sem fundað var, aðfaranótt miðvikudags, ríkti nokkur bjartsýni. Símtal frá Obama sem ítrekaði fyrri afstöðu Bandaríkjanna gerði hana að engu og hleypti meri kergju í Afríkuþjóðir. Kínverjar, Indverjar og Brasilíumenn hafa einnig gagnrýnt afstöðu Bandaríkjamanna. Þá urðu forsetaskipti á ráðstefnunni í gær þegar Connie Hedegård sagði af sér, að sögn til að hleypa þjóðhöfðingja með meiri vigt að stjórninni. Lars Lokke Rasmussen, forsætisráðherra Dana, gerði enga lukku fyrsta dag sinn í embætti. Í ljós kom að hann var ekki betur inni í málum en svo að hann skildi ekki skammstafanir og honum gekk erfiðlega að halda utan um umræðuna. Honum til afbötunar skal nefnt að skammstafanir hér eru í hundraða tali. Í lok dagsins virtist aðeins hafa hægst um. Það er þó enn með fullu óvíst hver niðurstaðan verður. Enn halda menn í vonina um að það náist að búa til ramma að samningi sem staðfestur verði í Mexíkó á næsta ári.
Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Lindsey Graham er látinn Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Fleiri fréttir Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Sjá meira