Meðalferðatími styst um þrjár til fjórar mínútur 17. desember 2009 04:15 ánægður Gísli Marteinn segir að vissulega hafi kreppan sitt að segja og hún hafi dregið úr umferð, en skýri hins vegar ekki breyttar ferðavenjur.Fréttablaðið/anton
Meðalferðatími á háannatíma í Reykjavík hefur styst um þrjár til fjórar mínútur fyrir hvern bíl á milli ára. Þetta er niðurstaða nýrra umferðartalninga umhverfis- og samgönguráðs borgarinnar, sem fram fóru í nóvember. Þrátt fyrir þetta er algengur ferðatími milli úthverfa og miðborgar Reykjavíkur 28 til 38 mínútur fram og til baka. Það þýðir að Reykvíkingar eyða tveimur til þremur klukkustundum á viku í bílum sínum á leið milli bæjarhluta. Ferðavenjukönnun sýnir einnig að færri ferðast nú einir í bílum sínum en áður. Í fyrra ferðuðust 76 prósent ein í bíl, miðað við 71 prósent nú. Hin 29 prósentin fara til vinnu ýmist sem farþegar í bíl, í strætó eða með öðrum hætti. Mest hefur þeim fjölgað sem ganga eða hjóla til vinnu. Í fyrra nýttu níu prósent þá kosti, en fjórtán prósent í ár. „Auðvitað hefur kreppan heilmikil áhrif,“ segir Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur. „Það eru færri á leiðinni til vinnu út af atvinnu- og efnahagsástandinu,“ bætir hann við. Kreppan skýri hins vegar ekki nema að litlu leyti breyttar ferðavenjur. „Fjölbreytilegri ferðamátar gera það að verkum að þeir sem þurfa að fara á bílum til vinnu komast greiðar leiðar sinnar,“ segir Gísli. Það spari hverjum og einum sem áður segir þrjár til fjórar mínútur að meðaltali. „Í heildina eru það mörg þúsund vinnustundir á hverjum einasta degi,“ segir hann. „Við erum ófeimin við að þakka þetta átakinu Grænu skrefunum sem ganga einmitt út á fjölbreytilegri ferðamáta þannig að allir komist leiðar sinnar örugglega og hratt á þann hátt sem þeir vilja, hvort sem það er bíll, strætó, reiðhjól eða gangandi.“- sh
Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Lindsey Graham er látinn Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Innlent Var látin í sólarhring áður en hún fannst Erlent Fleiri fréttir Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Sjá meira