Hægt að ná árangri í óbreyttu skattkerfi 17. desember 2009 06:00 Finnur Oddsson og Tómas Már Sigurðsson Finnur er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands og Tómas Már formaður. Þeir kynntu í gær, ásamt Frosta Ólafssyni aðstoðarframkvæmdastjóra, nýja skýrslu ráðsins um fjármál hins opinbera. Fréttablaðið/Vilhelm
Mælt er með blandaðri leið skattahækkana og aðhalds hjá hinu opinbera í nýrri skýrslu sem Viðskiptaráð Íslands gaf út í gær um fjármál hins opinbera. Á kynningu ráðsins á skýrslunni kom fram að með skattahækkunum og aðhaldi í óbreyttu skattkerfi mætti ná sama árangri og stefnt er að hjá stjórnvöldum með víðtækum skattkerfisbreytingum og hækkunum skatta. Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, segir forsvarsmenn ráðsins hafa saknað þess að fram færi umræða af „meiri dýpt“ þegar til stæðu einhverjar umfangsmestu breytingar á skattkerfi landsins sem lengi hafi verið gerðar. „Stefnan nú jafngildir því nánast að skipta um bát í haugasjó án þess að vita í raun hvort sá bátur sem farið er í sé sjófær,“ segir hann. „Ákvarðanir okkar í fjármálum hafa áhrif á trúverðugleika okkar út á við og veruleg áhrif á samkeppnishæfi atvinnulífsins í heild. Við þurfum að forðast að fólk og fjármagn flýi og komum því fram með hugleiðingar okkar nú.“ Í skýrslunni er bæði farið yfir þær ráðstafanir skattamála sem til stendur að ráðast í samkvæmt fjárlögum ársins 2010 og tillögur Viðskiptaráðs um aðrar leiðir. Fram kemur í skýrslu viðskiptaráðs að útþensla ríkisins hafi óvíða verið meiri en hér síðustu ár. Þannig hafi opinber útgjöld aukist fimmfalt hér á landi miðað við það sem gerst hafi að meðaltali í ríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) síðustu þrjátíu ár. Þar nemi hækkunin fimm prósentum, en 25 prósentum hér. „En aðlögunin nú fer fyrst og fremst fram í gegnum einkageirann,“ segir Finnur. Í kynningu Viðskiptaráðs á skýrslunni segir hins vegar að í þeirri stefnu sem mörkuð hafi verið felist takmarkaður niðurskurður útgjalda og veruleg aukning skattheimtu. „Þessi leið er að mati Viðskiptaráðs afar misráðin og dregur úr sjálfbærni ríkisfjármála til framtíðar. Við núverandi aðstæður er heppilegra að stjórnvöld velji hagnýtar leiðir sem byggja á raunsæi og varðstöðu um heildarhagsmuni,“ segir þar. Meðal tillagna ráðsins er endurskoðun á útgjaldaliðum ráðuneyta og tekjuöflun í gegnum lífeyrissjóði og með sölu ríkiseigna, efling fjárlagaferlisins og fjölmargir fleiri þættir. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Innlent Fleiri fréttir Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Sjá meira