Kreppuvindlar og vatnspípur 31. desember 2009 07:00 Sölvi Óskarsson, eigandi Bjarkar, og Kári Kjartansson hafa í nógu að snúast þessa dagana. fréttablaðið/anton „
Það er hægt að fá sér góðan vindil allt frá 500 krónum stykkið upp í 4.000 krónur,“ segir Kári Kjartansson, starfsmaður tóbaksverslunarinnar Bjarkar. Vindlareykingamenn flykkjast nú í búðina fyrir gamlárskvöld þrátt fyrir hækkandi verð á vindlum. „Bæði tóbaksskattur hefur hækkað og gengið hefur fallið. Þetta hefur mikil áhrif. En við reynum að koma til móts við fólk og hafa verðið temmilegt.“ Lítið er um að dýrustu vindlarnir seljist en þeir eru flestir frá Kúbu, Dóminíska lýðveldinu og Hondúras. Vindlarnir á um 500 krónur eru vinsælli, nokkurs konar kreppuvindlar. „Þeir eru betri fyrir pyngjuna hjá sumum. Það er um að gera að geta boðið allan skalann í þessu,“ segir Kári. Hann bætir við að hefðbundnar pípur hafi aukist í vinsældum að undanförnu sem og arabískar vatnspípur. „Það er svolítið sótt í tóbakið í þær til að eiga fyrir áramótapartíin. Þetta er í alls kyns bragðtegundum, epla-, jarðarberja- og myntubragð. Þetta er gripur sem margir reykja úr. Menn eru að ræða heimsmálin og róa sig niður með góðri vatnspípu.“ Vasapelar hafa einnig notið aukinna vinsælda. „Það er orðinn dýr dropinn á klúbbunum. Það er gott að geta yljað sér aðeins á röltinu,“ segir Kári.“ - fb
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Fleiri fréttir Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Sjá meira