Flottur pakki 18. maí 2009 04:00 Tónlist Trúbrot Trúbrot HHHH Trúbrot var ein af merkustu hljómsveitum íslenskrar poppsögu. Þessi heildarútgáfa sýnir að tónlist hennar þolir vel upprifjun og stendur fyrir sínu enn í dag.
Í ár eru liðin 40 ár síðan hljómsveitin Trúbrot steig fyrst á svið og af því tilefni hefur öllum fjórum plötum sveitarinnar verið safnað saman í viðhafnarútgáfu. Með öskjunni sem hýsir plöturnar fjórar fylgir 52 blaðsíðna bók sem rekur sögu Trúbrots í máli og myndum. Trúbrot var ofursveit stofnuð upp úr Hljómum og Flowers. Í upphaflegri útgáfu voru Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíusson, Karl J. Sighvatsson, Gunnar Jökull Hákonarson og Shady Owens, en það var nokkur hreyfing á mannaskipan og þeir Gunni og Rúnar voru einu meðlimirnir sem voru í sveitinni á öllum fjórum plötunum. Magnús Kjartansson kom inn á plötu númer tvö og var atkvæðamikill í sveitinni eftir það. Þegar Trúbrot varð til höfðu erlendar poppsveitir verið að þróa sína tónlist yfir í flóknari og framsæknari hluti. Trúbrot var stofnuð undir áhrifum frá þeim hræringum og lagði mikinn metnað í lagasmíðar og útsetningar. Á fyrstu plötunni voru sjö lög eftir Gunnar Þórðarson og fjögur tökulög í mjög breyttum útsetningum, þeirra á meðal var útgáfa Karls J. Sighvatssonar á Pílagrímakórnum úr Tannhäuser eftir Wagner með texta eftir Þorstein Eggertsson. Sú útgáfa fór fyrir brjóstið á mörgum og siðapostular Ríkisútvarpsins gengu svo langt að rispa lagið á þeim eintökum sem stofnunin átti. Það er margt hreint stórkostlegt á þessari fyrstu plötu Trúbrots þó að hún sé ekki fullkomin. Lagasmíðarnar eru sumar magnaðar, útsetningarnar eru flottar og það eru tilþrif í spilamennskunni, en textar Þorsteins Eggertssonar við lögin Konuþjófurinn og Afgangar sýna að sveitin var komin styttra á leið textalega heldur en tónlistarlega. Á fyrsta disknum eru líka lögin af smáskífunum tveimur sem komu í kjölfarið og eru báðar hrein snilld. Önnur platan Undir áhrifum er heilsteyptari en frumsmíðin. Textarnir eru á ensku og nú eftir hljómsveitarmeðlimi sjálfa og tónlistin er undir miklum áhrifum frá bandarískum hippasveitum eins og CSN&Y. Fín plata. Þriðja platan, hin margrómaða …lifun hefur að geyma þemaverk sem sveitin frumflutti á tónleikum í Háskólabíói í mars 1971. Frábært verk sem stendur vel fyrir sínu enn í dag. Lokaplata Trúbrots, Mandala, er svo sísta plata sveitarinnar. Það er svolítið eins og vindurinn sé aðeins farinn úr mönnum þó að á henni séu nokkur ágæt lög. Trúbrot var fyrsta íslenska ofursveitin og án efa ein af merkustu poppsveitum Íslands. Tvær af plötunum hennar eru í hópi hundrað bestu platna Íslandssögunnar í kosningunni sem nú fer fram á tónlist.is, fyrsta platan og …lifun. Það er ekki ofmat og í raun á Undir áhrifum alveg heima þar líka. Þó að ekkert áður óútgefið efni sé í Trúbrotsöskjunni er gott að fá þessar plötur allar saman í einum pakka og sérstaklega mikill fengur í ítarlegum sögutexta Jónatans Garðarssonar í bókinni sem fylgir. Trausti Júlíusson
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Fleiri fréttir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Sjá meira