Innlent

Langholtsskóli taki ekki nóg á einelti

Foreldrar í Langholtsskóla hafa áhyggjur af því að ekki sé tekið nógu vel á eineltismálum sem komi upp innan veggja skólans og tala um óvirkni í skólanum sem hafi viðgengist lengi.Fréttablaðið/anton
Foreldrar í Langholtsskóla hafa áhyggjur af því að ekki sé tekið nógu vel á eineltismálum sem komi upp innan veggja skólans og tala um óvirkni í skólanum sem hafi viðgengist lengi.Fréttablaðið/anton

Megn óánægja er meðal hóps foreldra í Langholtsskóla með viðbrögð skólans þegar eineltismál koma upp. Unnur Ragnheiður Hauksdóttir og Tina Maria Johnson eiga báðar börn í skólanum sem hafa orðið fyrir einelti. Þeim þykir skólinn ekki taka nógu hratt og vel á eineltismálum.

„Dóttir mín talaði um að það væri stúlka í bekknum sem væri mikið að stríða henni í haust og eftir áramót fór þetta að ágerast. Dóttir mín er frekar lágvaxin og stúlkan var til dæmis galandi og gólandi yfir alla í bekknum að hún væri dvergur. Kennarinn lofaði að tala við yfirvöld skólans og því hélt ég að þetta væri í einhverjum farvegi,“ segir Unnur.

„Síðan fór þetta að ágerast og ég gerði mér ekki grein fyrir að þetta væri farið að dreifast um hverfið. Dóttur minni var farið að líða svo illa að ég tók hana úr skólanum um tíma. Við foreldarnir fórum með hana út úr bænum og fórum svo niður í skóla að ræða við skólastjórann. Mér fannst óskaplega lítið gert úr þessu hjá honum,“ segir Unnur.

„Hann fór að tína eitt og eitt barn út úr bekknum til að tala við án vitundar foreldra en foreldrarnir vita ekki af þessu nema þeir sem ég hef talað við. Skólastjórinn hélt að með því að gerandinn kæmi til okkar og bæðist afsökunar þá væri málið búið. Að því er virðist átti ekki meira að gerast. Nú er þetta afgreitt mál en ég er ekki sátt við það. Ég vil til dæmis að stelpan fái sálfræðiaðstoð,“ segir hún og telur óvirknina í skólanum hafa viðgengist lengi.

Tina Maria á tvo drengi, sem báðir eru eða hafa verið í Langholtsskóla og hafa orðið fyrir einelti. Hún er mjög reið yfir því hversu lítið er tekið á eineltismálum í skólanum.

Hreiðar Sigtryggsson skólastjóri hafnar því að slælega sé tekið á eineltismálum í skólanum. Hann bendir á að skólinn hafi tekið upp Olveusar-verkefnið fyrir nokkrum árum og segir að farið sé eftir þeirri aðgerðaáætlun í hvívetna. Hann vill ekki ræða einstök mál sem hafa komið upp innan skólans.

Fjóla Íris Stefánsdóttir, formaður Foreldrafélags Langholtsskóla, segist ekki hafa heyrt af alvarlegum eineltismálum í Langholtsskóla upp á síðkastið. Hún segir að ástandið hafi batnað mikið eftir að skólinn hafi tekið upp Olveusar-verkefnið fyrir nokkrum árum.

ghs@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×